A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
14.11.2012 - 11:25 | Hallgrímur Sveinsson

Vestfirska forlagið fylkir liði á Bókamessuna 2012

Hallgrímur Sveinsson á Bókamessunni í fyrra.
Hallgrímur Sveinsson á Bókamessunni í fyrra.
« 1 af 13 »

Vestfirska forlagið mun mæta fylktu liði á Bókamessuna í Ráðhúsinu við Tjörnina í Reykjavk um næstu helgi, 17. og 18. nóvember, líkt og á fyrstu messunni í fyrra, sem var mjög ánægjuleg og vel skipulögð af hálfu Félags ísl. bókaútgefenda.

 

    Okkar maður, Jón forseti Sigurðsson, mun verða í broddi fylkingar, einhver mesti bókamaður Íslandssögunnar. Það helgast meðal annars af því, að Vestfirðingarnir munu hafa í pússi sínu nokkur hundruð myndir af forseta sem prentaðar voru í Englandi á stríðsárunum í tilefni lýðveldistökunnar 17. júní 1944, eftir því sem best er vitað. Þessar myndir, sem eru sögulegar að margra mati, verða seldar við vægu verði.


Á Bókamessunni, undir dagskrárliðnum Fólkið að vestan, sem verður í matsal Ráðhússins, munu höfundar lesa úr og kynna nokkrar bækur semVestfirska forlagið gefur út nú í ár:
   Finnbogi Hermannsson: Vestfirskar konur í blíðu og stríðu
   Guðrún Ása Grímsdóttir: Vatnsfjörður í Ísafirði
   Reynir Ingibjartsson og Ólafur Engilbertsson: Æviminningar Kristínar Dahlstedt veitingakonu
   Lýður Björnsson: Þar minnast fjöll og firðir. Ýmislegt um Gufudalshrepp hinn forna
   Lárus Jóhannsson: Andvaka. Lífshlaup og ljóð Tómasar Guðmundssonar Geirdælings hins víðförla

 

  Undir liðnum Mishlýjar sögur að vestan mun Hlynur Þór Magnússon lesa úr bók sinni Mishlýjar örsögur að vestan, en það eru gamansögur af Vestfirðingum lífs og liðnum, sem sumir kalla sannar lygasögur. Þar munu ýmsir aðrir merkismenn mæta. Jóhannes Kristjánsson frá Brekku á Ingjaldssandi verður heiðurs- og leynigestur forlagsins á staðnum og mun koma fram fyrir hönd nokkurra Vestfirðinga. Svo verður dragspilið þanið í kaffistofu Ráðhússins.

 

 Þá verður forlagið með kynningar- og sölubás á staðnum.

 

Hallgrímur Sveinsson, Brekku í Dýrafirði

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30