Um Þingeyrarkirkju
Rögnvaldur Ólafsson arkitekt og húsameistari teiknaði Þingeyrarkirkju og er hún úr steini í gotneskum stíl en að innan er hún prýdd fögru tréverki. Rögnvaldur Ólafsson var Dýrfirðingur og réð hann útliti og staðsetningu kirkjunnar á kirkjulóðinni, sem Gramsverslun á Þingeyri gaf undir Kirkjubygginguna. Kirkjuna lét arkitektinn snúa í norður og suður en ekki í austur og vestur eins og viðtekin venja er og var hún látin snúa svo sem hún gerir til að bera vel við þeim sem koma af hafi til Þingeyrar. Þingeyrarkirkja er vel búin gripum.
Altaristöfluna málaði Þórarinn B. Þorláksson, listmálari og sýnir hún Krist sem situr úti í íslenskri náttúru og hjá honum standa þrjár telpur. Myndefnið er: Jesús blessar börnin. Fyrirmyndirnar að telpunum eru dætur málarans. Skírnarfontur er útskorinn af Ríkharði Jónssyni, myndskera. Hjónin Gréta Björnsson listmálari og Jón Björnsson málarameistari máluðu og skreyttu kirkjuna með ýmsum trúarlegum táknum árið 1961. Sandakirkja var á kaþólskum tíma helguð heilögum Nikulási og hefur listmálarinn málað mynd hans hér í Þingeyrarkirkju vinstra megin við altarið og Pétur postula hægra megin. Þrír steindir gluggar eru á korgafli eftir glerlistakonuna Höllu Haraldsdóttur. Tvær ljósastikur fornar á kirkjan frá árinu 1656 úr Sandakirkju og fleiri gripi þaðan. Þá á Þingeyrarkirkja gripi úr Hraunskirkju í Keldudal, sem er aflögð. Frá upphafi hafa kirkjunni borist fjölmargar góðar gjafir.
Í fjöldamörg ár var Ólafur Hjartar móðurafi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, meðhjálpari í Þingeyrarkirkju. Á bernskuárum sínum fylgdi Ólafur Ragnar afa sínum oft til kirkju, en hann ólst upp að hluta til á Þingeyri hjá móðurforeldrum sínum.
Til fróðleiks má geta þess að kirkjan á fagran altarisdúk, sem Svanhildur Hjartar, móðir forsetans saumaði og gaf kirkjunni.
Formaður sóknarnefndar er Sigríður Helgadóttir og sóknarprestur er séra Guðrún Edda Gunnarsdóttir.
Kort með mynd af altaristöflunni eru til sölu í handverkshúsinu Gallerí Koltru - Upplýsingamiðstöð ferðamála, Hafnarstræti.
Höf: Guðrún Edda Gunnarsdóttir



















