A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
05.02.2015 - 07:54 | Afmælisrit Dýrfirðingafélagsins 2011 - Bjarni G. Einarsson

Þingeyrarkirkja

Þingeyrarkirkja.
Þingeyrarkirkja.
« 1 af 4 »

Bjarni Georg Einarsson verkstjóri, Þingeyri

Þingeyrarkirkja var byggð á árunum 1909- 1911 og vígð 9. apríl 1911

Áður var kirkja og prestssetur á Söndum í Þingeyrarhreppi og hafði staðið þar frá því snemma á 13. öld. Árið 1907, þegar ljóst var að byggja þyrfti nýja kirkju, var ákveðið að færa kirkjuna inn á Þingeyri, því að kauptúnið var þá að byggjast upp þar, en íbúar í Sandasókn voru þá 618. Prestssetrið var síðan flutt til Þingeyrar 1915.

Rögnvaldur Ólafsson arkitekt og húsameistari teiknaði Þingeyrarkirkju.  Rögnvaldur Ólafsson var Dýrfirðingur og réð hann útliti og staðsetningu kirkjunnar á kirkjulóðinni, sem Gramsverslun á Þingeyri hafði gefið undir kirkjubygginguna. Kirkjuna lét arkitektinn snúa í norður og suður en ekki í austur og vestur eins og viðtekin venja er og var hún látin snúa svo sem hún gerir til að bera vel við þeim sem koma af hafi til Þingeyrar.

Þingeyrarkirkja er vel búin gripum. Altaristöfluna málaði Þórarinn B. Þorláksson listmálari og sýnir hún Krist sem situr úti í íslenskri náttúru og hjá honum standa þrjár telpur. Myndefnið er: Jesús blessar börnin. Fyrirmyndirnar að telpunum eru dætur málarans. Skírnarfontur er útskorinn af Ríkarði Jónssyni myndskera. Hjónin Gréta Björnsson listmálari og Jón Björnsson málarameistari máluðu og skreyttu Þingeyrarkirkju með ýmsum trúarlegum táknum árið 1961.

Sandakirkja var á kaþólskum tíma helguð heilögum Nikulási og hefur listmálarinn málað mynd hans hér í Þingeyrarkirkju vinstra megin við altarið og Pétur postula hægra megin. Þrír steindir gluggar eru á kórgafli eftir glerlistakonuna Höllu Haraldsdóttur. Tvær ljósastikur fornar á kirkjan frá árinu 1656 úr Sandakirkju og fleiri gripi þaðan. Þá á Þingeyrarkirkja gripi úr Hraunskirkju í Keldudal, sem er aflögð. Frá upphafi hafa kirkjunni borist fjölmargar góðar gjafir.


Núverandi (2011) formaður sóknarnefndar er Sigríður Helgadóttir og sóknarprestur séra Guðrún Edda

Gunnarsdóttir.

 

Bjarni G. Einarsson.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31