A A A
  • 1992 - Hannes Pétur Einarsson
  • 1994 - Jón Þorri Jónsson
Jón Bjarnason
Jón Bjarnason
Þær eru metnaðarfullar sparnaðaraðgerðir Sparisjóðs Keflavíkur sem birtast okkur þessa dagana. Skera skal niður 3,5 stöðugildi á Vestfjörðum og stytta opnunartíma í útibúum í fjórðungnum og loka alveg afgreiðslunni á Borðeyri! Ekki veit ég hvað það starfsfólk hefur í laun sem hér er verið að segja upp, en varla hafa þau laun sett sparisjóðinn á slig. Hinsvegar munar um hvert starf á Vestfjörðum og þjónustustigið skiptir miklu máli. Ég varaði við samruna Sparisjóðs Vestfjarða við Sparisjóð Keflavíkur og taldi hann óráðlegan.

Hinsvegar er þetta allt eftir bókinni : Þegar stjórnun og ábyrgð færist úr héraði til manna sem búa í fjarlægum landshlutum þá er fyrst gengið á þá sem fjærst búa. Sparisjóður Keflavíkur er ekki einsdæmi hvað þetta varðar.

Hvernig varð tapið til?

Komið hefur fram í fréttum að tap Sparisjóðs Keflavíkur hafi verið 10,6 milljarðar króna á fyrstu 6 mánuðum ársins sem er geigvænlægt og hlýtur að krefjast nánari skýringa. Athygli vekur að með skýringum við árshluta uppgjör kemur einnig fram að lán sparisjóðsins til stjórnarmanna og fyrirtækja þeim tengdum hefur farið úr 194 milljónum króna um síðustu árámót í 1,6 milljarða króna sex mánuðum síðar.

Fór sparisjóðurinn út fyrir verksvið sitt?

Nú er það svo að sparisjóðunum er ekki ætlað að vera í áhættusæknum rekstri , kaupum og sölu verðbréfa í áhættusjóðum eða almennum fasteignaviðskiptum. Þeir eru fyrst og fremst viðskiptasjóðir. Það væri því fróðlegt að vita hvernig þetta tap er saman sett og hve stór hluti af þessum 10,6 milljörðum hefur tapast sérstaklega vegna viðskipta á Vestfjörðum.

Varla dugar þessi stórmannalega aðgerð Sparisjóðsins: að segja upp fjórum manneskjum á Vestfjörðum og loka afgreiðslunni á Borðeyri til þess að vega á móti þessu 10,6 milljarða tapi. Á sama tíma skilar Sparisjóður Suður- Þingeyinga hagnaði en hann er einn fárra sem starfar enn eftir grunngildum sparisjóðanna.

Lækka stjórnendur sín laun?

Almenningur hefur mátt hlusta á fregnir af ofurlaunum og „árangurstengdum“ þóknunum stjórnenda fjármálastofnana síðustu misseri.

Ég geri ráð fyrir að Sparisjóður Keflavíkur upplýsi að eigin frumkvæði t.d. hvað stjórnendur Sparisjóðs Keflavíkur hafi í laun og fríðindi ef einhver eru og hve mikið þeir hafi lækkað sitt eigið kaup í sparnaðaraðgerðunum. Jafnframt er eðlilegt að spyrja hvort hlutfallslega hafi verið sagt upp sama fjölda starfsfólks í höfuðstöðvunum eða á suðvesturhorninu.

Með nútíma tækni er hægt að vinna mörg störf einmitt tengt fjármálastarfsemi óháð staðsetningu. Það væri þess vegna hægt að færa störf frá höfuðstöðvum sjóðsins til Vestfjarða. Þar ræður vilji stjórnenda fyrst og fremst ferð.

Skuldar Vestfirðingum svör

Nú hefur hópur fyrrum eigenda SPRON kært stjórnendur þess sparisjóðs vegna meints fjármálamisferlis með eigur sjóðsins. Íbúar í Borgarbyggð krefjast þess að fá upplýsingar um hvernig það mátti gerast að Sparisjóður Mýrasýslu tapaði þar milljörðum króna á örfáum mánuðum og hverjir báru þar ábyrgð. Það er nú oft svo að þegar einn tapar þá hagnast annar.

Sparisjóðirnir eru að fara með almannafé, samfélagseignir og þó brask eigi aldrei að viðgangast þá gilda þrátt fyrir allt enn skýrari samfélags- og siðferðiskröfur um sparisjóði heldur en hlutafélagsbanka, sem hefur það eitt að markmiði að hámarka arð hluthafa sinna.

Jón Bjarnason.
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31