A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
16.08.2013 - 07:10 | Hallgrímur Sveinsson

Orðsending frá Vestfirska forlaginu

Hallgrímur Sveinsson.
Hallgrímur Sveinsson.

      Við skorum glæpasögurnar á hólm!

Þó glæpasögur séu margar góðar sem slíkar, er hæpið að láta þær verða aðal lesmál þjóðarinnar. Það er svipað og með melrakkann. Hann var fyrir í landinu þegar mannskepnan kom og á sinn þegnrétt. En rebbi má ekki vaxa okkur yfir höfuð. Þá er voðinn vís.

   Í vestfirskum sagnaarfi er bæði spenna  og dramatík, að ekki sé nú talað um húmorinn. Fólk hugsar oft ekki út í þetta. Það talar um þjóðlegan fróðleik með neikvæðum teiknum og jafnvel lítilsvirðingu. Vill frekar lesa einhverjar spennusögur sem kallaðar eru. En það er ekki síður spenna í því sem gerðist í raun og veru, eða átti að hafa gerst og stundum miklu meiri.

   Fyrsta framlag Vestfirska forlagsins í glæpasögubardaganum er Hornstrandir og Jökulfirðir, 2. bók. Hún er bæði spennandi og skemmtileg og það sem meira er: Skilur heilmikið eftir til umhugsunar fyrir lesandann. En glæpasögurnar gleypa menn bara í sig með húð og hári og búið á punktum!            

   Glæpa- og spennusögum er hampað í fjömiðlum árið út og árið inn. Það er auðvitað bara ágætt finnst sjálfsagt mörgum. En væri ekki gott að hafa svolítið meira af öðru efni í bland? Mætti ekki vera meira jafnvægi í þeirri umfjöllun?

 

            Glæpasögubardaginn er hafinn!

 

                                      Vestfirska forlagið
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30