A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
15.08.2015 - 14:03 | Hallgrímur Sveinsson

Dynjandi eða Fjallfoss?

Perla Vestfjarða. Alls eru 6 fossar á svæðinu fyrir neðan Dynjanda. Fossinn í forgrunni hefur fengið fjögur nöfn í gegnum tíðina: Strompgljúfrafoss, Úðafoss, Strokkur og Strompur! Ljósmyndari ókunnur.
Perla Vestfjarða. Alls eru 6 fossar á svæðinu fyrir neðan Dynjanda. Fossinn í forgrunni hefur fengið fjögur nöfn í gegnum tíðina: Strompgljúfrafoss, Úðafoss, Strokkur og Strompur! Ljósmyndari ókunnur.
« 1 af 2 »

Fjölsóttir staðir fyrir vestan 2.

Umhverfi bæjarins Dynjanda í Arnarfirði er einhver fegursta náttúrusmíð á Íslandi, enda hefur svæðið verið friðlýst sem náttúruvætti og nær sú friðlýsing yfir um 700 hektara af landi jarðarinnar Dynjanda.

   Það eru einkum fossarnir í hinni vatnsmiklu á Dynjandi og umgjörð þeirra, sem gera þessa náttúrusmíð ógleymanlega þeim sem þangað leggja leið sína. Stærsti fossinn og tilkomumesti er einhver fegursti foss á landinu.

Til skamms tíma deildu menn hart hér vestra um hvort þessi perla Vestfjarða héti Dynjandi eða Fjallfoss. Skiptust menn í flokka og héldu margir fast með sínu nafni, þó ekki hafi hlotist af meiðingar eða mannvíg líkt og trúlega hefði gerst á Sturlungaöld. Þó enn eimi eftir af því deilumáli, má segja að tíminn hafi skorið úr um þessar nafngiftir. Einnig rannsakaði Kjartan Ólafsson, Nestor vestfirskra fræðimanna, það mál ofan í kjölinn og varð hans áliti ekki áfrýjað.

 
  En hvers vegna ætli Vestfirðingar hyllist til að hafa tvö nöfn og jafnvel fleiri á sumum örnefnum sínum? Er þar nærtækt að nefna til dæmis Álftamýrarheiði og Fossdalsheiði. Tvö nöfn á sama svæði. Það er skemmtilegt rannsóknarefni, sjá greinina - Lagði svo á Álftamýrarheiði með brennivínstunnuna á bakinu.

 

Hallgrímur Sveinsson.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31