A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
Reynir Traustason segir ekkert svæði á Íslandi vera eins háð skilvirkum samgöngum og Vestfirðir og því sé sorglegt að vegaframkvæmdir þar skuli vera í endemisrugli.
Reynir Traustason segir ekkert svæði á Íslandi vera eins háð skilvirkum samgöngum og Vestfirðir og því sé sorglegt að vegaframkvæmdir þar skuli vera í endemisrugli.
Reynir Traustason ritstjóri DV fer stórum orðum um vegaframkvæmdir á Vestfjörðum í leiðara DV í dag. Segir hann fyrirhuguð jarðgöng frá Dýrafirði til Arnarfjarðar vera göng út í bláinn, brú yfir Mjóafjörð lengja sumarleiðina og nýjan veg um Arnkötludal virðast hafa þann eina tilgang að láta vegfarendur koma við í sjoppu á Hólmavík. Leiðarinn er svohljóðandi: „Vegaframkvæmdir á Íslandi ráðast gjarnan af pólitískum sjónarmiðum fremur en að hagsmunir vegfarenda ráði. Skýrt dæmi er að finna um þetta á Vestfjörðum þar sem hver framkvæmdin af annarri er í rugli. Á teikniborði Vegagerðar er að bora göng út í bláinn frá Dýrafirði til Arnarfjarðar. Þessi milljarðaaðgerð er að sögn til þess að gera sunnanverða Vestfirði og norðanverða að einu atvinnusvæði....
Meira
Sigurður Pétursson, bæjarfulltrúi  Ísafjarðarbæ
Sigurður Pétursson, bæjarfulltrúi Ísafjarðarbæ
Sigurður Pétursson oddviti Í-listans í Ísafjarðarbæ og flokksbróðir samgönguráðherra hefur birt grein á svæðisvefmiðlunum þar sem hann segir brýnt að standa við áður markaða stefnu um að flýta Arnarfjarðargöngum. "Nú ríður á að Vestfirðingar standi saman um að framkvæmdir við Dýrafjarðargöng gangi eftir einsog ákveðið hefur verið" segir Sigurður í grein sinni sem ber yfirskriftina "Ekkert hik" og lesa má í heild sinni í Heita pottinum hér neðar. "Sveitarstjórnir á Vestfjörðum, Fjórðungssamband Vestfirðinga og þingmenn kjördæmisins hafa stutt þessa áætlun og hvergi hafa sést merki um að þessir aðilar hafi í hyggju að skipta um skoðun eða beygja af leið. Það er ekki ætlun þess sem þetta ritar og það er ekki ætlun þingmanna Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Hér má enginn hika, því þá gæti allt tapast" segir Sigurður....
Meira
Eins og kunnugt er hefur verið samþykkt í ríkisstjórn flýta jarðgöngum Jóns Sigurðssonar milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og eiga framkvæmdir að hefjast árið 2010.
Eins og kunnugt er hefur verið samþykkt í ríkisstjórn flýta jarðgöngum Jóns Sigurðssonar milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og eiga framkvæmdir að hefjast árið 2010.
Samfylkingin í Ísafjarðarbæ hefur sent frá sér ályktun um Dýrafjarðargöng í kjölfar umfjöllunar um að samgönguráðherra hafi verið beittur þrýstingi til að fresta framkvæmdum við Dýrafjarðargöng og fara í stað þess í jarðgangnagerð milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Eins og fram hefur komið í fréttum var Kristján Möller samgönguráðherra á ferð um Vestfirði fyrir skömmu og sagðí í viðtali við svæðisútvarp Vestfjaðra að hann hefði fengið ábendingar frá sveitarstjórnarmönnum og fleiri aðilum um að Kirkjubólshlíð milli Súðavíkur og Ísafjarðar væri orðin það hættuleg vegna snjóflóða að ekki væri hægt að bíða með jarðgangnagerð á því svæði. Eins og kunnugt er hefur verið samþykkt í ríkisstjórn flýta jarðgangnagerð milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og eiga framkvæmdir að hefjast árið 2010. Göng milli Ísafjarðar og Súðavíkur eru því ekki næst í framkvæmdröðinni....
Meira
Eyrún Sigþórsdóttir.
Eyrún Sigþórsdóttir.
Eyrún Sigþórsdóttir, sveitarstjóri á Tálknafirði, segist ekki trúa öðru en að stjórnvöld standi við gefin fyrirheit um gerð jarðganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Þetta kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins. Líkt og sagt hefur verið frá sagði Kristján L. Möller, samgönguráðherra, nýlega að þrýst væri á sig víðs vegar að um að flýta gerð jarðganga á milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar, á kostnað jarðganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Ummælin hafa vakið mikinn róstur á Vestfjörðum og segjast margir ekki skilja hver það gæti verið sem þrýst hafi á ráðherra.
Gamla kaupfélagið á Þingeyri.
Gamla kaupfélagið á Þingeyri.
Nýlega barst Ísafjarðarbæ tilboð í húseignina Vallargötu 1 á Þingeyri, sem kallað er Gamla kaupfélagið eða Grams-verslun. Tilboðið er frá Hrafnhildi Skúladóttur á Þingeyri, en kaupverð kemur ekki fram. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs á mánudag og þar upplýsti bæjarstjóri að áður hafi bænum borist tvö önnur tilboð í þetta hús. Hefur ekki verið unnið úr þeim ennþá vegna óska tilboðsgjafa um frestun málsins. Bæjarráð ákvað að láta skoða málið nánar, bæði fyrri tilboð og tilboð Hrafnhildar. Ákvörðun um sölu verður tekin í framhaldi af því....
Meira
Ómar Ragnarsson.
Ómar Ragnarsson.
Ómar Ragnarsson, skemmtikraftur, fréttamaður og umhverfisverndarsinni er ekki par ánægður með þau tíðindi að samgönguráðherra íhugi að bera það upp á Fjórðungsþingi Vestfirðinga að gangagerð á milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar verði flýtt á kostnað gangagerðar á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Þetta kemur fram á bloggsíðu Ómars. „Með þessu er verið að reka íbúa Vesturbyggðar í fang rússneskra huldumannanna sem enginn fær að vita hverjir eru en íbúar Vesturbyggðar ætla að treysta fyrir öllu sínu og afkomenda sinna. Sú hugsun getur verið í undirmeðvitundinni hjá þeim sem ráða ferðinni í þessum málum að úr því að „99,9%" líkur séu á olíuhreinsistöð við Arnarfjörð geti fólkið á Suðurfjörðum ekki í ofanálag ætlast til þess að fá jarðgöngin líka", segir Ómar á bloggi sínu....
Meira
21.08.2008 - 00:43 | bb.is

„Eins og þruma úr heiðskíru lofti“

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir að umræða um breytta forgangsröðun í jarðgangagerð á Vestfjörðum komi honum á óvart, en líkt og sagt hefur verið frá sagði Kristján L. Möller, samgönguráðherra, nýlega að þrýst væri á sig að flýta gerð jarðganga á milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar, á kostnað jarðganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. „Þetta er eins og þruma úr heiðskíru lofti", segir Halldór. „Ég er búinn að heyra í sveitarstjórnarmönnum vítt og breitt á Vestfjörðum eftir viðtalið og það kannast enginn við að hafa rætt þetta við ráðherra með þessum hætti". Þá segir Halldór að heimildarmenn hans fullyrði að enginn í þeirra sveitarfélögum hafi þrýst á ráðherra um breytta forgangsröðun....
Meira
21.08.2008 - 00:42 | skutull.is

Hera heldur tónleika á Þingeyri

Hera Hjartardóttir
Hera Hjartardóttir
Hera Hjartardóttir heldur tónleika í Félagsheimilinu á Þingeyri föstudaginn 22. ágúst.

Húsið opnar kl. 20.30, tónleikarnir byrja kl 21.00. Miðaverð kr 1500.

Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30