Vorhátíð á Hótel Sögu 17. apríl 2015
Þá er komið að því!  
"Alltaf fer ég Vestur" hátíðin föstudagskvöldið 17. april 2015 í Súlnasal Hótel Sögu. 
Sameiginleg vorhátiíð Flateyringa,Dýrfirðinga og Súgfiðringa. 
Eftir borðhald og allskonar skemmtilegheit, sér Flateyrarhljómsveitin ÆFING um að þetta verði almennilegt skrall. Þeir sem muna eftir 16. júní bölllunum á Súganda, Hestamannabölllum á Þingeyri og Æfingaböllum á Flateyri…endilega segið yngra liðinu frá (kannski ekki öllu..hm..) og dragið með á Sögu. Þarna verða öll þessi böll á einum stað og getur orðið áhugavert, og skemmtilegt að minnska kosti... 
Miðasala hjá "Amma mús" (sjá á Plakati. Ath ! Ekki posi) Þeir sem kjósa að greiða inn á bankareikninginn fá miðana afhenta við innganginn. 
Allir hjartanlega velkomnir.
Vonum að sjá sem flesta á Hótel Sögu.
Nefndin.


 
		 
		 
		 
		 
		
















