A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
11.11.2016 - 07:03 | Vestfirska forlagið,Safnahúsið á Ísafirði

Við slökkvum ljósin á Bókasafninu...

« 1 af 2 »

Norræna bókasafnavikan verður haldin í 20. sinn dagana 14.-20. nóvember 2016.

Um er að ræða verkefni á vegum Sambands Norrænu félaganna sem hefur að markmiði að efla áhuga á lestur og um leið að vekja athygli á norrænum bókmenntum.

Mánudaginn 14. nóvember verður Norræna bókasafnavikan sett og þennan dag er norræn frásagnarlist og sagnaauður í öndvegi. Verða valdir textar lesnir upphátt samtímis á bókasöfnum á Norðurlöndum á hinum ýmsu tungumálum.

Ár hvert er sérstakt þema og textar valdir út frá því. Að þessu sinni er þemað „Framtíðin á Norðurlöndum“. Gert er ráð fyrir að yfir 2.000 bókasöfn taki þátt og mun

Bókasafnið Ísafirði ekki skorast undan. Í boði verður dagskrá fyrir fullorðna sem hefst kl 17:00 og samanstendur af upplestri og dansatriði. Jón Reynir Sigurvinsson les textann og um dansinn sér Emma Jóna Hermannsdóttir nemandi Listaskóla RÓ.

Heitt á könnunni. Verið kærlega velkomin að eiga með okkur notalega stund við kertaljós!

Hér má finna frekari upplýsingar um Norrænu bókasafnavikuna: http://bibliotek.org/is/




« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31