A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
12.03.2017 - 21:16 | Vestfirska forlagið,Jóhanna G. Kristjánsdóttir,Björn Ingi Bjarnason

Vestfirska vorið

Önundarfdjörður.
Önundarfdjörður.

Málþing sem ber heitið Vestfirska vorið verður haldið á Flateyri dagana 5. – 6. maí 2017.

Að málþinginu standa Perlur fjarðarins ehf. Flateyri, félagið Hús og fólk Flateyri og ýmsir heimamenn á Flateyri í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða, Fræðslumiðstöð Vestfjarða með styrk frá Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.

Markmið málþingsins er vekja athygli á vestfirsku samfélagi og málefnum dreifðra byggða á Íslandi. Heimamenn, fræðimenn og gestir munu skiptast á skoðunum í von um að umræða er tæki mið af reynsluheimi íbúa dreifðra byggða, þekkingu og sýn fræðimanna muni efla skilning á stöðu mála, viðfangsefnum og hugsanlegum úrræðum. 

Fyrirlesarar verða:
Dr. Þóroddur Bjarnason, félagsfræðingur, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri,
Dr.Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur, Jóns Sigurðssonar prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands,
Dr. Kristinn Hermannsson, hagfræðingur, lektor við Glasgow-háskóla, Skotlandi.
Sæbjörg Freyja Gísladóttir, þjóðfræðingur, Flateyri,
Kristján Torfi Einarsson, útgerðarmaður og sjómaður, Flateyri
og Jóhanna G. Kristjánsdóttir menntunarfræðingur Flateyri.

 

 

Nánari upplýsingar: Jóhanna Kristjánsdóttir - Sími: 4567626 / 8642943 - Netfang: johanna@snerpa.is



« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30