A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
08.12.2008 - 01:12 | Tilkynning

Vestfirsk bókakynning

Í Bókakaffi á Selfossi var fjölmenni og gríðarlega góð stemmning 5. des. s.l.á vestfirskri bókakynningu F.v.: Með hattinn; Steingrímur Stefnisson, Flateyri, Hafliði Magnússon, Bíldudal fór á kostum við lesturinn, sitjandi við borðid; Guðrún Jónína Magnúsdóttir, frá Ingjaldssandi, og Þingeyringarnir Regína Höskuldsdóttir og Gerður Matthíasdóttir. Ljósm.: BIB

Vestfirðingar, brottfluttir og aðrir fjarri heimabyggð, boða til bókakynningar í Veitingahúsinu Catalinu, Hamraborg 11 í Kópavogi, miðvikudaginn 10. desember n.k. kl. 20:30. Þar verða kynntar og lesið úr þremur af þeim ellefu bókum sem Vestfirska forlagið á Þingeyri gefur út fyrir þessi jól. Önfirðingurinn Guðrún Jónína Magnúsdóttir á Hellu kynnir bók sína "Birta - ástarsaga að vestan" sem er þriðja og síðasta bókin í þessari ritröð. Áður komu út bækurnar um Hörpu og Silju 2006 og 2007. Ísfirðingurinn og Flateyringurinn Harpa Jónsdóttir í Vík í Mýrdal kynnir bók sína "Húsið - Ljósbrot frá Ísafirði" sem er saga hússins að Hrannargötu 1 á Ísafirði og fyrst og fremst af fólkinu í kring um það og nánasta umhverfi. Harpa fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin 2002 og var bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar.

Þá kynna Bílddælingarnir Jón Kr. Ólafsson, söngvari þar og Hafliði Magnússon, rithöfundur sem nú býr á Selfossi, bók Hafliða um lífshlaup Jóns Kr. "Melódíur minninganna." Jón Kr. Ólafsson er landskunnur söngvari og söng á sínum tíma með hljómsveitinni Facon á Bíldudal og allir þekkja lag þeirra "Ég er frjáls." Pétur Bjarnason frá Bíldudal, sem samdi lagið, hefur sett saman hljómsveit að þessu tilefni og mun Jón Kr. taka lagið.

Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Þess má til gamans geta að myndir frá bókakaffi á Selfossi og Vík í Mýrdal má finna á www.flateyri.is.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30