A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
Þingeyrarflugvöllur. Ljósm: © Mats Wibe Lund.
Þingeyrarflugvöllur. Ljósm: © Mats Wibe Lund.
Fyrirhugaðar breytingar á þjónustusamningi vegna Þingeyrarflugvallar skerða þjónustu á flugvellinum að mati bæjarráðs Ísafjarðarbæjar. Meðal breytinga er að viðveru starfsmanns á vellinum frá kl. 8 á morgnana til hádegis alla virka daga. Umrædd breyting tekur gildi 1. október nk. og á að gilda fram til 20. apríl 2010, en þá telst vetrarviðhaldstímabili lokið. Á meðan verður þjónusta veitt fyrir hvert flug samkvæmt beiðni sem koma á til starfmanns á Ísafjarðarflugvelli, sem síðan tekur ákvörðun um framhaldið og kallar til verktaka til að sinna aðgerðarþjónustu. „Að fenginni áralangri reynslu af vetrarviðhaldi flugbrauta, verður ekki hjá því komist að telja þessa ráðstöfun til verulegrar skerðingar á nýtingu flugvallarins," segir í bréfi Guðbjörns Charlessonar, umdæmisstjóra Flugstoða á Vestfjörðum til bæjarráðs.

 

Bæjarráð mótmælir þessum breytingum og leggur áherslu á mikilvægi Þingeyrarflugvallar, sem varaflugvallar fyrir Ísafjörð. Bæjarráð beinir þeim eindregnu tilmælum til Flugstoða ohf., í ljósi sparnaðaraðgerða, að ekki verði hreyft við starfi umdæmisstjóra Flugstoða á Vestfjörðum.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31