A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
26.09.2017 - 06:40 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Varðveitum örnefnin: - Hvar er Kjaransstræti?

Kjaransstræti í vestanverðri Hrafnseyrarheiði. Ljósm.: H. S.
Kjaransstræti í vestanverðri Hrafnseyrarheiði. Ljósm.: H. S.

Kjaransstræti:

Þegar Auðkúluhreppur sameinaðist Þingeyrarhreppi 1992 fylgdi snjóbíll með í kaupbæti. Þá lagði Elís Kjaran braut fyrir hann niður úr kinninni að vestanverðu efst í Hrafnseyrarheiði, utan til við svokallað Manntapagil. Margir hafa kallað braut þessa Kjaransstræti í höfuðið á brautryðjandanum.

Sagan segir að átján manns hafi farist í Manntapagili í gegnum aldirnar. Það fylgir, að þegar sá tuttugasti ferst, muni heimsendir koma.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30