A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
21.09.2016 - 07:43 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Útvarpspistill - „Þetta var og þarna var“

Pétur Pétursson þulur.
Pétur Pétursson þulur.
« 1 af 3 »

Þulirnir á Gömlu gufunni og Rás 2 eru yfirlett skýrir í máli og prýðilegir þegar um er að ræða  kynningar og afkynningar á dagskrárefni. Þau fara nú kannski ekki alltaf í fötin hinna gömlu meistara Péturs Péturssonar, Jóns Múla, Jónasar Jónassonar, Helga Hjörvar og þeirra kumpána. Sem ekki er von. En samt valda þau vel sínu verkefni yfir höfuð. Eftirfarandi dæmi skal þó nefna sem okkur finnst að vel mætti skoða í sambandi við afkynningar. Þeir gömlu hefðu trúlega aldrei klikkað á þessu! En sínum augum lítur hver á silfrið.

Þetta var þátturinn Frjálsar hendur. Illugi Jökulsson sá um þáttinn= 10 orð. Væri ekki einfaldara að segja: Illugi Jökulsson sá um þáttinn Frjálsar hendur= 7 orð.

Þulur afkynnir: Þarna heyrðum við í sigurvegara söngvakeppninnar.

Færi ekki betur á að segja: Við heyrðum í sigurvegara söngvakeppninnar.

Þulur afkynnir: Þetta voru Passíusálmarnir. Mörður Árnason las.

Færi ekki betur á að segja: Mörður Árnason las Passíusálmana. Fjögur orð í stað sex.

Þulur afkynnir: Þarna heyrðist í Jóni Jónssyni.

Færi ekki betur á að segja: Rætt var við Jón Jónsson.


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30