A A A
  • 1978 - Elín Soffía Pilkington
  • 1990 - Sólrún Arney Siggeirsdóttir
  • 1993 - Jónas Kristinn Jónasson
03.07.2017 - 07:17 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Úr ríki náttúrunnar: - Hvað er þetta?

 Á Brekkudal í Dýrafirði. Ljósm.: HS.
Á Brekkudal í Dýrafirði. Ljósm.: HS.

Í hlíðinni fyrir ofan Sólheima á Brekkudal í Dýrafirði gat að líta nývirki nokkurt í gær.

Eins og myndin sýnir, er búið að rífa upp mosann á stóru svæði á þessum slóðum. Hver meiningin er með því er svo ekki gott að segja. En það er líklega mávurinn sem þarna á hlut að máli. Stundum kemur hann í stórum hópum í hlíðarnar hér vestra og dvelur þar um stund. Sumir segja að það bendi til vestanáttar og vætu.

En hvað þetta mosarifrildi á að merkja hjá honum vitum vér ekki svo gjörla. Þetta hefur verið mikil vinna, því þarna er að jafnaði iðjagræn hlíð að sjá á sumrum.


« Maí »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31