A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
Fyrsta skóflustungan. Á myndinni eru Sveinn Ingi Guðbjörnsson, Högni Gunnar Pétursson, Halldór Ingi Högnasson og Sigríður Halla Halldórsdóttir.
Fyrsta skóflustungan. Á myndinni eru Sveinn Ingi Guðbjörnsson, Högni Gunnar Pétursson, Halldór Ingi Högnasson og Sigríður Halla Halldórsdóttir.

Föstudaginn 13. apríl síðastliðinn tók ung fjölskylda fyrstu skóflustunguna að einbýlishúsi sem skal rísa að Ártungu 1 á Ísafirði. Þessi tíðindi eru sannarlega markverð sérstaklega í ljósi þess hve byggingaverð hefur haldist hátt á landsbyggðinni og því lítil ásókn í að ráðast í slíkar framkvæmdir. „Þetta er eitt af fyrstu húsunum í langan tíma, líklega eru komin um 10 ár síðan síðast var tekinn sökkull fyrir húsi. Svo er líklega annar aðili sem er að fara af stað í sama hverfi.“ sagði Sveinn Ingi Guðbjörnsson hjá Vestfirskum Verktökum. 

Högni Gunnar Pétursson og Sigríður Halla Halldórsdóttir eru unga parið sem stendur í því að byggja sér framtíðarheimili en Sigríður er frá Dýrafirði. Högni starfar sem vélvirki og vinnur í Vélsmiðjunni Þrym og Sigríður vinnur hjá Búsetuþjónustu fatlaðra hjá Ísafjarðarbæ. Þau eiga soninn, Halldór Inga, og eiga þau von á sínu öðru barni í byrjun ágúst. 

„Við vorum búin að vera að skoða fasteignamarkaðinn hér heima og framboðið var ekki mikið af einbýlishúsum. Mörg húsanna sem komu á markað voru kannski 30 til 40 ára gömul og eins og eðlilegt er þörfnuðust þau mikils viðhalds á næstu árum. Þá breytinga eins og nýrra innréttinga og fleira. Við fórum þá að skoða þann kost að byggja hús og fannst okkur ekki miklu muna í kostnaði eftir útreikninga, með þær kröfur sem við höfðum.“ Sigríður Halla bætir við að það hafi enn fremur ýtt undir ákvörðun þeirra að byggja hús, þegar bæjarstjórn Ísafjarðar tók þá jákvæðu ákvörðun að bjóða nokkrar lóðir án gatnagerðargjalda. „Þetta hvetur til húsbygginga,“ segir Sigríður Halla, en þau Högni sóttu um og fengu lóð að Ártungu 1 síðasta sumar.

Sigríður Halla segir að hingað til hafi ferlið gengið mjög vel. „Við hittum arkitekt í ágúst í fyrra, sem hannaði húsið fyrir okkur algjörlega eftir okkar hugmyndum. Við fengum teikningarnar í hendurnar fljótlega eftir áramót og svo hafa seinustu burða- og lagnateikningar frá verkfræðingum borist síðasta mánuðinn.“ Eftir áramót hefur parið aðallega verið í því að kanna verð og fá tilboð frá byggingaverktökum, rafvirkjum og fleirum. „Við gerðum samning við Vestfirska Verktaka, sem eru yfir verkefninu,“ segir Sigríður Halla, „þeir sjá um að steypa sökkla og klára plötu, ásamt pípurum og rafverktökum, en Barði Önundarson annast uppgröft. Fyrsta skóflustungan var tekin núna 13. apríl og byrjað er að grafa fyrir sökklum.“

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31