A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
19.12.2017 - 06:52 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Þröst­ur Sig­tryggs­son - Fæddur 7. júlí 1929 - Dáinn 9. des. 2017 - Minning

Þröstur Sigtryggsson (1929 - 2017).
Þröstur Sigtryggsson (1929 - 2017).
« 1 af 2 »
Þröst­ur Sig­tryggs­son skip­herra fædd­ist 7. júlí 1929. Hann lést 9. des­em­ber 2017.

For­eldr­ar hans voru hjón­in Hjaltlína Mar­grét Guðjóns­dótt­ir, kenn­ari og hús­freyja, frá Brekku á Ingj­aldssandi, f. 4.7. 1890, d. 30.1. 1981, og séra Sig­trygg­ur Guðlaugs­son, prest­ur og skóla­stjóri á Núpi, frá Þröm í Garðsár­dal, f. 27.9. 1862, d. 3.8. 1959. Bróðir Þrast­ar var Hlyn­ur veður­stofu­stjóri, f. 5.11. 1921, d. 14.7. 2005.

Hinn 22.5. 1954 kvænt­ist Þröst­ur Guðrúnu Páls­dótt­ur sjúkra­liða, f. 23.9. 1933, d. 25.8. 2013. For­eldr­ar henn­ar voru Bjarn­heiður Jóna Guðmunds­dótt­ir hús­móðir, f. 7.9. 1910, d. 10.8. 1976, og Páll Þor­bjarn­ar­son, skip­stjóri og alþing­ismaður, f. 7.10. 1906, d. 20.2. 1975.

Börn Þrast­ar og Guðrún­ar eru:
1) Mar­grét Hrönn, maki Sig­urður Hauks­son. Son­ur Mar­grét­ar er Þröst­ur Rún­ar Jó­hanns­son.
2) Bjarn­heiður Dröfn, maki Sig­ur­jón Þór Árna­son. Börn þeirra eru Sig­trygg­ur Örn Sig­urðsson, Rúna Björg, Ell­en Dögg og Árni.
3) Sig­trygg­ur Hjalti, maki Guðríður Hall­björg Guðjóns­dótt­ir, hún lést 1995. Syn­ir Sig­tryggs eru Þröst­ur, Guðjón Örn og Hlyn­ur.
Fyr­ir átti Þröst­ur Kol­brúnu Sig­ríði, maki Magnús Pét­urs­son. Þeirra syn­ir eru Sig­urður Hann­es, Pét­ur Örn, Davíð Þór og Friðjón. Langafa­börn Þrast­ar eru 24.

Eft­ir lát eig­in­konu sinn­ar eignaðist Þröst­ur góðan fé­laga og vin, Hall­fríði Skúla­dótt­ur.

Þröst­ur ákvað nokkuð snemma að hans ævi­starf yrði á sjó. Hann tók inn­töku­próf upp í ann­an bekk far­manna í Stýri­manna­skól­an­um haustið 1952 og út­skrifaðist frá Stýri­manna­skól­an­um 1954 og lauk prófi í varðskipa­deild í sama skóla 1954. Hann réðst þá sem stýri­maður hjá Land­helg­is­gæsl­unni og varð fa­stráðinn skip­herra 1960 og starfaði þar til hann lét af störf­um árið 1990.

Þröst­ur kenndi tvo vet­ur við grunn­skól­ann á Þing­eyri. Reri einnig frá Þing­eyri á eig­in trillu, Palla krata, sumr­in 1993 og 1994.

Hann var skóla­stjóri barna­skól­ans á Núpi 1981 til 1983 og kenndi einnig við Héraðsskól­ann á Núpi.

Þröst­ur var mik­ill áhugamaður um golf á þess­um árum og stofnaði golf­fé­lagið Glámu á Þing­eyri, ásamt því að teikna merki fé­lags­ins. Hann falaðist eft­ir jörð og fékk þar sem hann hannaði og gerði níu holu golf­völl. Æsku­slóðir voru hon­um hug­leikn­ar og gerði hann æsku­heim­ili sitt, Hlíð í Dýraf­irði, að menn­ing­ar­minja­safni. Átti hann hug­mynd að rit­un sögu Núps­skóla. Sú hug­mynd varð að veru­leika og kom bók­in, sem Aðal­steinn Ei­ríks­son ritaði, út í sum­ar, á 110 ára af­mæli stofn­un­ar skól­ans.

Minn­inga­brot Þrast­ar, bók­in „Spaug­sami spör­fugl­inn“, komu út 1987. Í til­efni gull­brúðkaups og 75 ára af­mæl­is Þrast­ar gaf hann út disk­inn „Haf­blik“ með eig­in lög­um.

Þröst­ur var sæmd­ur ridd­ara­krossi hinn­ar ís­lensku fálka­orðu 17. júní 1976. Hin síðari ár var hann virk­ur í starfi eldri borg­ara í Grafar­vogi og var í stjórn menn­ing­ar­deild­ar í Borg­um þegar hann lést.

Útför Þrast­ar fer fram frá Grafar­vogs­kirkju í dag, 19. des­em­ber 2017, klukk­an 15.

 

____________________________________________________

Minningarorð Georgs Kr. Lárussonar

 

Bar­átt­an um yf­ir­ráðin yfir auðlind­um hafs­ins er tví­mæla­laust einn þýðing­ar­mesti kafl­inn í sögu sjálf­stæðis­bar­áttu okk­ar því án efna­hags­legs sjálf­stæðis er hið póli­tíska sjálf­stæði lít­ils virði. Leiðtog­ar þjóðar­inn­ar höfðu kjark til þess á sín­um tíma að berj­ast fyr­ir út­færslu land­helg­inn­ar og síðan fisk­veiðilög­sög­unn­ar og Land­helg­is­gæsl­an hafði það ábyrgðar­mikla hlut­verk að fram­fylgja þeirri stefnu. Þar stóðu skip­herr­ar Land­helg­is­gæsl­unn­ar í broddi fylk­ing­ar við aðstæður sem voru í senn viðkvæm­ar og hættu­leg­ar. Einn þess­ara manna sem við eig­um svo mikið að þakka var Þröst­ur Sig­tryggs­son.

 

Þröst­ur var fædd­ur að Núpi í Dýraf­irði árið 1929. Hann hóf sjó­mennsku 1947 og fljót­lega upp úr því hóf hann störf um borð í varðskip­un­um. Að afloknu námi í Stýri­manna­skól­an­um, sem Þröst­ur lauk með hæstu ein­kunn, varð hann stýri­maður á varðskip­un­um 1953. Sjö árum síðar var Þröst­ur orðinn skip­herra og starfaði sem slík­ur nán­ast óslitið til árs­ins 1990, þegar hann sett­ist í helg­an stein.

Þröst­ur fékkst við ým­is­legt á ferli sín­um hjá Land­helg­is­gæsl­unni. Hann var á ýms­um varðskip­um, í stjórn­stöð og flug­deild. Á of­an­verðum sjötta ára­tugn­um var hann einn af fyrstu stýri­mönn­um Gæsl­unn­ar sem sinntu eft­ir­liti með land­helg­inni úr Ca­tal­ina-flug­bát­um við mjög frum­stæðar aðstæður. Þegar Vest­manna­eyjagosið stóð yfir annaðist Þröst­ur stjórn og skipu­lag bú­slóðaflutn­inga úr Heima­ey fyr­ir hönd Land­helg­is­gæsl­unn­ar.

Fyrst og fremst verður Þrast­ar þó minnst fyr­ir frammistöðu sína í þorska­stríðum átt­unda ára­tug­ar­ins. Þar þótti hann ganga fram af mik­illi hugdirfsku en um leið fá­dæma yf­ir­veg­un og gætni. Það voru eig­in­leik­ar sem skiptu sköp­um á þess­um viðsjár­verðu tím­um þegar er­lend her­skip sigldu um Íslands­mið með gín­andi fall­byssukjafta og sam­skipti þjóðar­inn­ar við önn­ur og stærri ríki voru á suðupunkti.

Þrátt fyr­ir að tím­arn­ir væru al­var­leg­ir var Þröst­ur sjálf­ur jafn­an létt­ur í lund. Sjálfsævi­saga hans geym­ir marg­ar skemmti­leg­ar sög­ur enda var Þröst­ur frá­bær sagnamaður með kímni­gáfu í rík­ari mæli en flest­um okk­ar er gef­in. Á efri ár­un­um hélt Þröst­ur ágætu sam­bandi við sinn gamla vinnustað, nú síðast í fe­brú­ar síðastliðnum þegar hann kom í mjög ánægju­lega heim­sókn í Skóg­ar­hlíðina með öld­ungaráði Land­helg­is­gæsl­unn­ar.

Um leið og við hjá Land­helg­is­gæsl­unni vott­um börn­um Þrast­ar og öðrum ást­vin­um inni­lega samúð minn­umst við sann­kallaðs heiðurs­manns. Hafi orðið „Land­helg­is­gæslumaður“ átt vel við ein­hvern þá er það Þröst­ur Sig­tryggs­son.

 

Georg Kr. Lárus­son,

for­stjóri Land­helg­is­gæslu Íslands.

 

Morgunblaðið þriðjudagurinn 19. desember 2017.

 

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30