A A A
  • 1978 - Elín Soffía Pilkington
  • 1990 - Sólrún Arney Siggeirsdóttir
  • 1993 - Jónas Kristinn Jónasson
14.01.2009 - 01:57 | Tilkynning

Þorrablót 2009

Frá þorrablóti 2007. Mynd: Bergþór Gunnlaugsson.
Frá þorrablóti 2007. Mynd: Bergþór Gunnlaugsson.
Hið árlega þorrablót Slysavarnardeildarinnar Varnar verður haldið laugardagskvöldið 24. janúar 2009. Þetta árið verður brugðið út af vananum og verður gestum boðið upp á að velja sér rétti af hlaðborði. Á hlaðborðinu verður hinn hefðbundni íslenski þorramatur. Ekki er búið að breyta öllum venjum og verða skemmtiatriði á sínum stað ásamt happdrættinu. Veglegir vinningar í boði. Að borðhaldi loknu verður stiginn dans, Þórunn og Halli sjá um fjörið!!

Gengið verður í hús föstudagskvöldið 16. janúar til að kanna áhuga á þátttöku.

 

Miðaverð: borðhald + ball 6000 kr.

Borðhald: 4500 kr.
Ball: 2500 kr.

 

Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta :)

« Maí »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31