A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
20.02.2017 - 13:49 | Vestfirska forlagið,Reykhólavefurinn,Björn Ingi Bjarnason

Þjóðvegur 2 um Vestfirði gæti verið segull

Vestfirðir á kortinu magnaða í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ljósm.: BIB
Vestfirðir á kortinu magnaða í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ljósm.: BIB
« 1 af 2 »

„Það bíða okkar risavaxin verkefni sem eru gríðarlega brýn, sem skipta öllu máli fyrir stór landsvæði og uppbyggingu í atvinnulífi á þeim. Ég nefni verkefni eins og Dettifossveginn, einnig lagningu vegar um Teigsskóg, Dýrafjarðargöng sem eru komin í gang og síðan þarf að fara í framkvæmdir við Dynjandisheiði í framhaldinu,“ segir Jón Gunnarsson samgönguráðherra í samtali í Viðskiptablaðinu.

 

Jón segir að frekari uppbygging á landsbyggðinni geti hjálpað til við að dreifa ferðamönnum betur um landið, til að mynda með hringvegi um Vestfirði sem myndi opna þann landshluta fyrir ferðamönnum.

 

„Mér finnst uppbyggingin vera gríðarlega mikilvæg fyrir þetta svæði, ekki síst með tilliti til þeirrar atvinnustarfsemi sem þarna er að byggjast upp með öflugri hætti en við höfum séð í áratugi, til dæmis í fiskeldinu. Af þessu mun augljóslega leiða að ferðaþjónustan mun eflast,“ segir Jón, sem tekur ekki illa í hugmyndir um að slíkur hringvegur gæti fengið nafngiftina þjóðvegur 2 til að trekkja að ferðamenn.

 

„Mér finnst það alveg vera hugmynd sem megi ræða, en aðalatriðið er að búa til barnið áður en þú skírir það. Það er alveg ljóst að ferðaþjónustan þarf, og þar spila samgöngumál stórt hlutverk, að búa til fleiri svokallaða segla. Við höfum Gullfoss og Geysi, það er Gullna hringinn, sem er í raun ofsetinn í dag svo við þurfum fleiri slíka segla.“


« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31