A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
09.08.2018 - 19:18 | Hallgrímur Sveinsson

„Þetta er rosalegt ástand“

-„Þetta er allur bærinn eins og hann leggur sig,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, þar sem bæjarbúar hafa mátt þola rafmagnsbilun frá klukkan þrjú í dag. Hún segir að hátt í níu hundruð heimili búi enn við rafmagnsleysi vegna bilunarinnar en unnið er að viðgerð, samkvæmt tilkynningu frá Rarik.

„Þetta er rosalegt ástand og grafalvarlegt þegar svona er,“ segir Aldís. „Við eigum sem betur fer færanlega vararafstöð. Það er ljóst að við þurfum að eiga fleiri færanlegar rafstöðvar,“ segir Aldís. Hún telur ekki ólíklegt að bærinn fjárfesti í annarri vararafstöð til að bregðast við viðburðum sem þessum. „Auðvitað lærir maður af þessu. Þetta minnir mann á hversu háð við erum rafmagni,“ segir Aldís.

 

Þessi tilvitnun er í frétt ruv.is seinni partinn í dag 7. ágúst 2018. 

Þegar þetta er skrifað er búið að vera rafmagnslaust í Hveragerði í heilar 5 klst. Þegar maður les þetta mætti við fyrstu sýn halda að verið væri að lýsa rafmagnsleysi á Vestfjörðum einhverntíma á liðnum áratugum. En svona hefur þetta gengið á þeim bæ meira og minna svo lengi sem elstu menn muna. Það sem kallast rosalegt ástand í Hveragerði hefur sem sagt oft verið daglegt brauð hérna fyrir vestan, þó eitthvað hafi það nú skánað á allra síðustu árum. Er nema furða að Vestfirðingar séu orðnir eitthvað þið vitið. En nú ættu Hvergerðingar alla vega að „fatta“ þá betur!  

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31