A A A
30.07.2016 - 08:57 | bb.is,Vestfirska forlagið

Talsvert tjón í Dýrafirði vegna of hárrar spennu

Mjólkárvirkjun
Mjólkárvirkjun
„Við höfum fengið nokkrar tilkynningar um tjón í Dýrafirði á miðvikudaginn vegna þess að of há spenna fór inn á dreifikerfið,“ segir Halldór V. Magnússon, framkvæmdastjóri veitusviðs hjá Orkubúi Vestfjarða í samtali við BB nú í morgunsárið. Hann segir þetta hafa orsakast þannig að vegna vinnu við endurnýjun vélbúnaðar í Mjólkárvirkjun hafi þurft að keyra varaaflsvél á Þingeyri en við innsetningu eftir vélakeyrslu virkaði ekki spennumæling þannig að of há spenna fór tímabundið inn á kerfið áður en náðist að bregðast við. 

Samkvæmt heimildum blaðsins var nokkuð um að smá og stór raftæki hafi skemmst í Dýrafirði. Ómar Dýri Sigurðsson á Ketilseyri varð fyrir töluverðu tjóni. „Hér eyðilagðist meðal annars þurrkari, örbylgjuofn, heimasíminn, hleðslutæki fyrir síma og tölvu, hitalagnir í gólfum. Svo sprungu einhverjar perur líka,“ segir hann í samtali við BB. Þá segir Inga Vignisdóttir á Þingeyri að raftæki hafi eyðilagst meðal annars í lyfjaútibúi Lyfju á Þingeyri, sem dæmi reiknivél. 

Að sögn Halldórs hjá OV verður viðskiptavinum bætt tjónið. 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30