A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
10.05.2017 - 17:16 | Vestfirska forlagið,Fræðslumiðstöð Vestfjarða,Björn Ingi Bjarnason

Stóra myndin í heilbrigðismálum – Erindi frá SÍBS

Á morgun, immtudaginn 11. maí 2017, mun Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, ræða "Stóru myndina í heilbrigðismálum" í Fræðslumiðstöð Vestfjarða. 

Sjúkdómsbyrði Íslendinga má jafna við að ár hvert glatist af hennar völdum fimmtungur landsframleiðslunnar. Í fyrirlestrinum er notast við gögn frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni um „glötuð góð æviár“ vegna sjúkdóms og dauða, og eru gögnin skoðuð á grafískan og gagnvirkan hátt sem gefur afar góða heildarsýn á sjúkdómsbyrðina og ríkuleg tækifæri til umræðu.

Guðmundur mun í kjölfarið ræða og svara spurningum um erindið og forvarnarststarf SÍBS.

Erindið verður í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði kl. 12-13 og í fjarfundi í Þekkingarsetrinu Skor í Patreksfirði. Jafnframt munum við leitast við að streyma honum á Facebook síðu SÍBS fyrir aðra staði.

Allir velkomnir.

Nánari upplýsingar á vef SÍBS


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30