A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
20.06.2015 - 06:40 | Hallgrímur Sveinsson

Skynsamlegar viðræður strax!

Bryndís Hlöðversdóttir, hinn nýi ríkissáttasemjari, og Magnús Pétursson f.v. ríkissáttasemjari en hann er tengdasonur Önundarfjarðar. Bryndís er í erfiðri stöðu. Hún þarf á aðstoð hinna bestu manna að halda.
Bryndís Hlöðversdóttir, hinn nýi ríkissáttasemjari, og Magnús Pétursson f.v. ríkissáttasemjari en hann er tengdasonur Önundarfjarðar. Bryndís er í erfiðri stöðu. Hún þarf á aðstoð hinna bestu manna að halda.

   Hvað hefði Jón Sigurðsson gert ef hann væri forsætisráðherra lýðveldisins í dag? Vel má ímynda sér að hann hefði kallað hina bestu menn til verka að sætta þá deiluaðila sem nú berast á banaspjót. Með öðrum orðum: Skynsamlegar viðræður á bak við tjöldin án þvingunar eða  dóms.  Nákvæmlega eins og þegar hann notaði hin sögulegu rök við Dani. Sáttanefnd með valdheimildir við hlið ríkissáttasemjara var vonlaus, enda strax slegin út af borðinu. Hinir bestu menn bíða eftir því að Alþingi og ríkisstjórnin kalli þá að borðinu!

„Af þessum sökum er mikilvægt að stjórnvöld bregðist ekki við reiði hjúkrunarfræðinga vegna þess í hvaða farveg deilan er komin með venjubundnum pólitískum stóryrðum eða skætingi - heldur af skynsemi. Og eitt af því sem er mikilvægt, hvað sem líður væntanlegum gerðardómi, er að strax verði hafist handa við óformlegar viðræður við forystusveit hjúkrunarfræðinga um framhaldið. Verði það ekki gert mun sárið stækka en ekki gróa.“

   Svo skrifar gamli haukurinn Styrmir Gunnarsson í blað sitt. Það er nákvæmlega þetta sem við höfum verið að hamra á hér á Þingeyrarvefnum og víðar. Nota skynsemina og tala saman. 

 

Hallgrímur Sveinsson.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31