A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
Frá Patreksfirði. Vesturbyggð skorar á samgönguráðherra að hvika ekki frá samþykktri samgöngustefnu Vestfjarða.
Frá Patreksfirði. Vesturbyggð skorar á samgönguráðherra að hvika ekki frá samþykktri samgöngustefnu Vestfjarða.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar skorar á samgönguráðherra að hvika ekki frá samþykktri samgöngustefnu Vestfirðinga sem samþykkt var að fylgja eftir á Fjórðungsþingi Vestfirðinga árið 1997 og hefur verið staðfest á öllum fjórðungsþingum síðan. Samgöngustefnan fól í sér að leggja heilsársveg um Djúp og Arnkötludal inn á þjóðveg nr. 1 og heilsársveg um Barðastrandasýslu inn á þjóðveg nr. 1. Opna síðan heilsársveg milli norðan- og sunnanverðra Vestfjarða með göngum milli Dýrafjarðar og V-Barðastrandasýslu.

„Þessi stefnumótun er að mestu leyti staðfest í gildandi samgönguáætlun Alþingis. Bæjarstjórn Vesturbyggðar telur ekki forsendur til að breyta þessari samþykkt að öðru leyti en því að hraða verkefnum frá því sem nú er, þannig að þessari nauðsynlegu samgöngubót ljúki eigi síðar en árið 2011 með göngum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og í framhaldi komi fullkomin tenging úr Arnarfirði til byggða í V-Barðastrandasýslu. Ekki má draga þessar samgöngubætur lengur því fjölmörg verkefni til viðbótar bíða", segir í ályktun sem var samþykkt samhljóða á þriðjudag.

 

Bæjarstjórn Vesturbyggðar telur þessa stefnu nýtast Vestfirðingum best við að tengja saman byggðirnar til aukinna viðskipta og samskipta af öllum toga. Þannig verði byggð best styrkt á Vestfjörðum.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31