A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
27.07.2009 - 09:49 | bb.is

Salthúsið togað og teygt

Myndin er tekin á Þingeyri um 1880. Stóra húsið, þar sem fáninn blaktir, er verslunarhús sem kaupmaðurinn N. Chr. Gram lét reisa og stendur enn. Lengst til vinstri er gamla beykishúsið og pakkhúsið
Myndin er tekin á Þingeyri um 1880. Stóra húsið, þar sem fáninn blaktir, er verslunarhús sem kaupmaðurinn N. Chr. Gram lét reisa og stendur enn. Lengst til vinstri er gamla beykishúsið og pakkhúsið
Framkvæmdir við Salthúsið á Þingeyri hafa gengið vel í sumar. Búið er að reisa veggi og áætlað er að þakið verði sett á húsið í ágúst. Guðmundur Óli Kristinsson, annar eigandi G.Ó.K. húsasmíði ehf., hefur yfir umsjón með verkinu. Hann segir verkið ekki hafa gengið áfallalaust fyrir sig. Allar undirstöður hússins hafi verið vel bognar og eru engin horn rétt en hann segir þau öll samt sem áður vera passlega skökk. „Verkið hefur gengið hægar en ég bjóst við. Við náðum húsinu saman með því að toga þetta og teygja. Mér hafa oft fallist hendur og fætur en það má ekki gefast upp við svona framkvæmd," segir Guðmundur Óli.

 

G.Ó.K. húsasmíði ehf., hefur unnið við endurbætur á húsinu síðastliðin 10 ár með mislöngum hléum. Salthúsið var reist á 18. öld. Sagan segir að húsið sé jafn gamalt pakkhúsinu á Hófsósi, þar sem Vesturfarasetrið er til húsa, þótt umdeilt sé hvenær húsið hafi verið byggt. Sumir töldu það vera elsta hús landsins, reist árið 1732 eða 1734. Aðrir töldu og telja að það hafi verið reist á tíma einokunarverslunarinnar árið 1774. En þá voru allmörg plankahús smíðuð og reist í Danmörku, tekin sundur og reist á verslunarstöðunum þar sem Konungsverslunin hin síðari var við lýði.

Mörg sögufræg hús eru á Þingeyri og má þar nefna Vertshús, en það er eitt elsta íbúðarhús á Þingeyri og var fyrsti veitingastaðurinn. Fyrsta símstöðin á Þingeyri var í húsinu sem var reist sumarið 1881. Einnig er að þar að finna gamla spítalann sem er elsta sjúkrahús í Vestur Ísafjarðarsýslu. Hallhús, en þar var fyrsta skurðaðgerðin með fullri smitgát gerð á Íslandi 6. júní árið 1891. Einnig má nefna gamla kaupfélagið, veglegasta verslunarhús á Vesturlandi þegar það var byggt 1872.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31