A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
16.08.2017 - 06:44 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Eyþór Eðvarðsson,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

ÖRNEFNASKRÁNING VESTFIRSKRA FJARÐA

Fundur um skráningu örnefna.
Fundur um skráningu örnefna.

Í lok síðasta árs luku Súgfirðingar við skráningu örnefna í Súgandafirði en verkið hafði tekið um tvö ár. Það var Birkir Friðbertsson bóndi í Birkihlíð í Súgandafirði sem bar hitann og þungann af starfinu en hann lést 5. júní í ár.

Eyþór Eðvarðsson formaður Fornminjafélags Súgandafjarðar er mikill áhugamaður um skráningu örnefna og á sunnudagskvöld stóð hann, ásamt fleirum, fyrir fundi í Kaffi Sól í Önundarfirði um skráningu örnefna í Önundarfirði, Dýrafirði og Arnarfirði.

Framundan er því að skrá örnefni næstu fjarða og var áhugi fundarmanna á verkefninu mikill, taka þarf myndir frá fjalli til fjöru og síðan að merkja inn á öll þekkt örnefni. Þau munu svo fara í sameiginlega örnefnaskrá.



« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30