A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
21.08.2015 - 14:24 | Fréttatíminn,BIB

Nýtt leikverk um snjóflóðið á Flateyri

Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors.
Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors.

Flóð, nýtt íslenskt leikverk um snjóflóðið á Flateyri og eftirköst þess, mun fara á fjalir Borgarleikhússins í janúar. Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors hafa undanfarið tekið viðtöl við fjölda fólks sem upplifði flóðið á einn eða annan hátt og mun verkið byggja á frásögnum þeirra. Hrafnhildur segir vinnuna við verkið ekki vera auðvelda enda sé um gífurlega viðkvæmt efni að ræða sem sumir hafi vanist því að ræða opinskátt á meðan aðrir geymi það í skúmaskotum sálarinnar.

„Allir tala til að mynda um það hvað veraldlegir hlutir skipta litlu máli. Áherslan á fjölskylduna og vináttubönd er því mjög mikilvæg og að lifa og þakka fyrir daginn í dag.“ 

 

„Þetta er hugmynd sem kom upphaflega frá Birni Thors,“ segir leikskáldið Hrafnhildur Hagalín um verkið „Flóð“ sem hún skrifar nú í samvinnu við Björn Thors. Verkið mun fjalla um snjóflóðið sem skall á Flateyri aðfaranótt 26. október 1995, með þeim hörmulegu afleiðingum að tuttugu manns fórust, og eftirköst þess.

Tuttugu ár frá flóðinu

„Björn var á sínum tíma í menntaskóla með krökkum sem eru frá Flateyri þannig að hann fylgdist mjög vel með gangi mála auk þess sem hann átti nána vini sem tengdust flóðinu beint. Hann hefur líka verið mikið á Flateyri undanfarin sumur og þá rifjaðist þetta allt saman upp. Leikhússtjórinn okkar hér í Borgarleikhúsinu var svo með þetta í maganum líka, að fjalla um snjóflóðin á einhvern hátt og þannig mættust þau með þessa hugmynd í fyrra. Í ár eru liðin 20 ár frá þessum atburði og því tilefni til að minnast og gera þessu skil því í raun var þetta áfall allrar þjóðarinnar á sínum tíma. Ég var svo fengin inn í þetta verkefni og við Björn erum að skrifa þetta núna í sameiningu.“

Unnið í samstarfi við Flateyringa

Verkið mun verða heimildaverk sem byggir á frásögnum Flateyringa og hafa Hrafnhildur og Björn tekið viðtöl bæði við fólk sem lenti í flóðinu og sem stóð utan við það. „Við erum enn að taka viðtölin en erum komin með töluvert af efni. Það skiptir okkur miklu máli að vinna þetta í nánu samstarfi við Flateyringa því þetta er auðvitað mjög viðkvæmt efni sem þarf að fara gríðarlega mjúkum og varfærnislegum höndum um. Við reynum að nálgast flóðið frá öllum hliðum og köntum til að fá sem skýrasta mynd. Þetta er nánast eins og púsluspil sem raðast inn í smátt og smátt eftir því sem við tölum við fleira fólk og heyrum meira um sögu hvers og eins.“
Hrafnhildur segir vinnuna við verkið vissulega taka á. „Hér er um að ræða gríðarlegar lífsreynslusögur og margar mjög átakanlegar. Fólk er á misjöfnu stigi hvað úrvinnslu atburðanna varðar. Sumir eru búnir að tala sig oft í gegnum atburðina á meðan það eru aðrir sem hafa minna snert á þeim og geymt þá í skúmaskotum sálarinnar. Það er misauðvelt fyrir fólk að tjá sig og sumir vilja það ekki, sem maður skilur auðvitað mjög vel. En við erum afar þakklát fyrir þann stuðning sem við höfum fengið og ómetanlegt hvað margir hafa tekið okkur opnum örmum, setið með okkur jafnvel fram á rauðanótt yfir kaffibolla og veitt okkur aðgang að ómetanlegum heimildum.“

Flóðið breytti lífi allra

Hrafnhildur segist finna fyrir miklum stuðningi frá bæjarbúum og almennri jákvæðni í garð verksins sem verið sé að móta. „Ég finn líka fyrir mikilli samkennd á milli þessa fólks. Þau hafa tengst mjög nánum böndum og þrátt fyrir allt þá býr flóðið líka yfir fallegum sögum. Þetta er líka björgunarsaga fjölskyldna og einstaklinga og um það hvernig fólk í kjölfar áfalls endurmetur líf sitt, setur það sem skiptir máli í lífinu í forgang og stendur eftir sterkara og betri manneskjur. Fólk virðist vera misjafnlega statt í sorginni en eitt er víst og það er að flóðið breytti lífi allra sem því tengdust. Allir tala til að mynda um það hvað veraldlegir hlutir skipta litlu máli. Áherslan á fjölskylduna og vináttubönd er því mjög mikilvæg og að lifa og þakka fyrir daginn í dag,“ segir Hrafnhildur sem trúir því að flestir geti tengt við eitthvað í verkinu. „Allir eiga sín áföll stór og smá í fortíðinni, og snjóflóðin á Flateyri og Súðavík snertu alla þjóðina á sínum tíma, því held ég að verkið eigi erindi við okkur öll.“

Æfingar á Flóði hefjast í nóvember og stefnt er að frumsýningu í kringum 20. janúar. Leikarar eru Kristbjörg Kjeld, Bergur Þór Ingólfsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir.

 

Fréttatíminn helgina 20. ágúst - 23. ágúsg 2015

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30