A A A
  • 1978 - Elín Soffía Pilkington
  • 1990 - Sólrún Arney Siggeirsdóttir
  • 1993 - Jónas Kristinn Jónasson
03.09.2017 - 11:11 | Vestfirska forlagið,Menntaskólinn á Ísafirði,Hildur Halldórsdóttir,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Nýnemaferð Menntaskólans á Ísafirði árið 2017 var farin í Dýrafjörð

Nýnemarnir eru hér að Núpi í Dýrafirði.
Nýnemarnir eru hér að Núpi í Dýrafirði.
« 1 af 6 »

Hin árlega nýnemaferð Menntaskólans á Ísafirði var farin í Dýrafjörð dagana 24. - 25. ágúst s.l.

Nýnemahópurinn fór í fylgd fjögurra kennara að Núpi í Dýrafirði þar sem var gist.

Ekið var út að eyðibýlinu Arnarnesi við utanverðan Dýrafjörð og gengið þaðan að Núpi.

Eftir hádegi var farið í Skrúð og notið leiðsagnar og fræðslu um staðinn frá Emil Inga Emilssyn kennara og leiðsögumanni.

Um kvöldið héldu nemendur kvöldvöku þar sem farið var í leiki og stjórn NMÍ mætti á svæðið og kynnti félagslíf vetrarins.

Einnig var horft á draugamyndina Glámu sem er einmitt tekin upp í gamla héraðsskólanum á Núpi.

Eftir morgunmat á föstudegi var farið í ratleik og síðan haldið heim á leið eftir ánægjulega ferð. 


Hildur Halldórsdóttir,
aðstoðarskólameisrari,

og skólameistari veturinn 2017 - 2018.

« Maí »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31