A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
18.12.2013 - 05:57 | Björn Ingi Bjarnason

Ný bók að vesta - Það góða sem við viljum-

Ný bók að vesta - Það góða sem við viljum-  eftir Ingmar Bergman.
Ný bók að vesta - Það góða sem við viljum- eftir Ingmar Bergman.

Þó Ingmar Bergman sé hvorki Vestfirðingur né af vestfirskum ættum svo vitað sé, skartar Vestfirska forlagið honum nú. Ástæðan er aðallega sú að þýðandinn, Magnús Ásmundsson, gaf forlaginu þýðingu sína.

   Í bókinni fjallar Bergman um ævi foreldra sinna og dregur ekkert undan fremur en endranær. Bókin er einskonar framhald af Fanny og Alexander. Hún var gefin út í Svíþjóð 1991 af forlaginu Norstedts og kemur nú út á íslensku í fyrsta sinn í góðri samvinnu við Svía.

      Sagan hefst árið 1909. Fátækur guðfræðistúdent, Henrik Bergman, verður ástfanginn af Önnu Åkerblom, sem er komin af efnuðu fólki í Uppsölum. Eftir brúðkaupið verður Henrik prestur í norður Svíþjóð. Eftir nokkur ár er Anna búin að fá nóg af óhefluðu sveitalífinu. Hún snýr aftur til Uppsala en Henrik dvelur áfram norður þar.

   Ingmar Bergman skrifaði þessa sögu með gerð kvikmyndar

í huga. Hún hefur verið nefnd ein af mestu og bestu ástarsögum sem ritaðar hafa verið á sænska tungu
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31