A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
23.10.2017 - 17:24 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vegagerðin,Vestfirska forlagið

NOKKUÐ AF VATNI Í BERGINU

Í síðustu viku voru grafnir 62,5 m í Dýrafjarðargöngum og göngin orðin 312,6 m að lengd. Eftir stíganda í greftrinum frá því að framkvæmdir hófust var heldur hægari gangur í síðustu viku samanborið við vikuna á undan. Það helgast af því að vikunni var byrjað á fyrsta útskoti ganganna.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur nokkuð af vatni komið úr berginu undanfarið og því hafa verið boraðar drenholur í þekju til að leiða vatn úr berginu. Efni úr jarðgöngum hefur verið keyrt á haugsvæði og í fyllingar.

Undanfarið hefur verið unnið við að standsetja skrifstofur verktaka og eftirlits við munna ganga, væntanlega verða þær teknar í notkun síðar í vikunni.  Eins hafa verið settir upp olíutankar.


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30