A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
28.06.2017 - 06:58 | Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

Merkir Íslendingar - Hjörtur Hjálmarsson

Hjörtur Hjálmarsson (1905 - 1993).  Ljósm.: BIB
Hjörtur Hjálmarsson (1905 - 1993). Ljósm.: BIB
28. júní 2017 - 112 ár frá fæðingu Hjartar Hjálmarssonar

Hundrað og tólf ár eru í dag frá fæðingu Hjartar Hjálmarssonar fyrrum skólastjóra og sparisjóðsstjóra á Flateyri.
Hann fæddist á Þorljótsstöðum í Skagafirði 28. júní 1905. Hann lést á Dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum 17. nóvember 1993 á 89. aldursári. 

Árið 1931 fluttist Hjörtur til Flateyrar og gerðist kennari við barnaskólann, fyrst sem almennur kennari. Árið 1959 tók hann við skólastjórn og gegndi því starfi til ársins 1970. Hann kvæntist Aðalheiði Rögnu Sveinsdóttur, dóttur Sveins Gunnlaugssonar þáverandi skólastjóra á Flateyri og Sigríðar Benediktsdóttur. Hjörtur og Ragna eignuðust tvo syni, þá Emil Ragnar kennara og skólastjóra og Grétar Snæ starfsmannastjóra.

Ragna var lengi kirkjuorganisti og söngkennari á Flateyri. Hjörtur var oddviti Flateyrarhrepps á árunum 1938 til 1946, hreppstjóri var hann frá 1948 til 1972 og sat í sýslunefnd árin 1942 til 1972. Hann sat í stjórn og var stjórnarformaður Kaupfélags Önfirðinga frá 1944 til 1973. Hjörtur var síðasti heiðursborgari Flateyrarhrepps.

Auk þess var Hjörtur, samhliða kennslu og skólastjórn, forystumaður í vel flestum félögum og samtökum á Flateyri um áratuga skeið og hafði þannig mjög mótandi áhrif á allt mannlíf á staðnum um langt árabil.


 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30