A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
Knattspyrnuskóli Íslands verður haldinn á Þingeyri dagana 10. - 13. júlí 2008. Fyrir alla knattspyrnuiðkendur, stráka og stelpur, sem eru 11 - 17 ára, þ.e. fædd 1991-1997, sem eru: 3., 4. og 5. flokkur og yngsta ár í 2. flokki. Tilgangurinn er að bjóða knattspyrnuiðkendum á Vestfjörðum uppá úrvals knattspyrnuskóla á svæðinu. Í skólanum er kennd tækni, taktík og gildi rétts hugarfars. Skólasetning fer fram fimmtudaginn 10. júlí kl. 21:15 í Grunnskólanum á Þingeyri. Mæting/skráning kl. 20:00 - 21:00 þann sama dag. Skólaslit verða sunnudaginn 13. júlí kl. 21:00.

 

Kennarar skólans eru reyndir þjálfarar & íþróttakennarar. Skólastjóri er Bjarni Stefán Konráðsson, íþróttafræðingur og þjálfari. Sérstakir gestir skólans verða Hemmi Gunn knattspyrnuhetja og Lúka Kostic. Skráning og upplýsingar hjá Bjarna Stefáni í síma 695-4504 (bjarnist@mr.is), hjá Sigmundi í síma 863-4235 (sigmfth@simnet.is) eða hjá Ellerti Erni í síma 897-8636 (ellert@isafjordur.is). Munið að skrá tímalega!

 

Verð er 15.900.- krónur og er systkinaafsláttur 3.300.- krónur. Innifalið í gjaldinu er: Sjö æfingar og knattspyrnumót, fullt fæði og húsnæði (svefnpokagisting í Grunnskólanum), peysa, bakpoki, þátttökupeningur, fótbolti, frítt í sund, hæfileikakeppni o.fl., fræðsla fagmanna um knattspyrnuleg málefni og örugg gæsla allan sólarhinginn.


LEIKJANÁMSKEIÐ HÖFRUNGS 2008 HEFST ÞANN 9. JÚNÍ

Leikjanámskeið Höfrungs hefst mánudaginn 9.júní og skiptist í 3 námskeið.
Hvert námskeið stendur í tvær vikur.

1. námskeið hefst 9. júní - 20. júní.
2. námskeið hefst 23. júní - 4. júlí.
3. námskeið hefst 7. júlí - 18. júlí.

 

Námskeiðið er einn og hálfur tími í senn og skiptist þannig:
6-8 ára kl. 9.00 - 10.30
9-11 ára kl. 10.30 - 12.00
12-15 ára kl. 13.00 - 14.30.

 

Munið að taka með ykkur hollt og gott nesti. Mæting og skráning verður við Grunnskólann á Þingeyri.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30