A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
Þingeyri
Þingeyri
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í Knattspyrnuskóla Íslands en hann verður haldinn á Þingeyri dagana 8.-12. júlí. Skólinn er ætlaður öllum knattspyrnuiðkendum, strákum og stelpu, á aldrinum 11-17 ára, þ.e. fædd 1992-1998. Markmiðið er að bjóða knattspyrnuiðkendum á Vestfjörðum upp á úrvals knattspyrnuskóla á svæðinu. Í skólanum er kennd tækni, taktík og gildi rétts hugarfars. Skólinn verður settur í Grunnskólanum á Þingeyri kl. 14 miðvikudaginn 8. júlí. Kennslan er í höndum reyndra þjálfara og íþróttakennara en skólastjóri er Bjarni Stefán Konráðsson, íþróttafræðingur og knattspyrnuþjálfari. Knattspyrnuskóli Íslands hafi verið starfræktur í meira en áratug á Sauðárkróki við góðan orðstír.

 

Nánari upplýsingar og skráning er hjá Bjarna Stefáni í síma 695-4504 og bjarnist@mr.is, Sigmundi í síma 863-4235 og sigmfth@simnet.is.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31