A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
13.10.2010 - 12:40 | bb.is

Hreinskiptin samskipti á íbúafundi

Gísli Halldór Halldórsson forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, Eiríkur Finnur Greipsson formaður bæjarráðs og Daníel Jakobsson bæjarstjóri á fundinum.
Gísli Halldór Halldórsson forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, Eiríkur Finnur Greipsson formaður bæjarráðs og Daníel Jakobsson bæjarstjóri á fundinum.
« 1 af 2 »
Rúmlega fjörutíu manns sátu íbúafund sem Ísafjarðarbær hélt í félagsheimilinu á Þingeyri í gærkvöldi. Á fundinum var m.a. fjallað um fyrirhuguð hverfaráð og íbúalýðræði og horfur og stöðu í rekstri bæjarins. Að loknum erindum frá Eiríki Finni Greipssyni, formanni bæjarráðs, Daníel Jakobssyni bæjarstjóra og Valdimari Elíassyni, formanni íbúasamtakanna Átaks, var tekið við fyrirspurnum og ábendingum fundarmanna. „Efst í huga heimamanna var það sem þeir kalla óskalistann eða syndalistann sem eru óunnin verkefni sem mikið er af í byggðakjarnanum sem auðvitað er íbúunum hjartans mál að fá lagað og breytt. Það fóru fram mjög hreinskiptin samskipti og skoðanaskipti á fundinum," segir Eiríkur Finnur í samtali við blaðið.

Eins og greint hefur verið frá telja samtökin Átak ekki ástæðu til að stofna sér hverfaráð fyrir Þingeyri, þar sem þau geti tekið að sér hlutverk þess hverfisráðs sem annars þyrfti að stofna fyrir svæðið. Eiríkur segir líklegt að svo verði en ekki hafi verið tekin ákvörðun um það að svo stöddu. „Fulltrúi bæjaryfirvalda mun funda með samtökunum þegar drög að stofnun hverfaráða hafa verið kynnt fyrir öllum íbúasamtökunum í sveitarfélaginu. Það er mjög líklegt að Átak verði þessi hverfasamtök á Þingeyri sem við erum að fella inn í stjórnskipulag bæjarins. Það er mikill vilji fyrir því meðal forystumanna samtakanna."

Samskonar fundur verður haldinn í Félagsbæ á Flateyri klukkan 20 í kvöld og skora bæjaryfirvöld á alla Önfirðinga að mæta á fundinn, fá upplýsingar um fyrirhuguð hverfaráð og koma sínum áherslum á framfæri.
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31