A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
30.05.2016 - 11:50 | bb.is,Vestfirska forlagið

Hrafninn á hvíta tjaldið

Dýrfirðingurinn Vilborg Davvíðsdóttir.
Dýrfirðingurinn Vilborg Davvíðsdóttir.

Kvikmyndagerðarmennirnir Bergsteinn Björgúlfsson og Ólafur Darri Ólafsson hafa gert samning við Vilborgu Davíðsdóttur rithöfund um gerð handrits og kvikmyndar byggðri á skáldsögu hennar Hrafninum. Kvikmyndamiðstöð Íslands hefur veitt Köggli sf., fyrirtæki Bergsteins, styrk til handritsskrifa og er hann þegar byrjaður á verkinu. Hrafninn kom út árið 2005 hjá Máli og menningu og var Vilborg tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bókina. Útgáfurisinn Bertelsmann gaf Hrafninn út fyrir fáum árum í Þýskalandi undir titlinum Die Winterfrau og hefur verkið hlotið afar góðar viðtökur þar. 
Dýrfirðingurinn Vilborg Davíðsdóttir er einn af ástsælli rithöfundum þjóðarinnar og hefur hún að mestu fengist við að skrifa sögulegar skáldsögur. Á síðasta ári kom út bókin hennar Ástin, drekinn og dauðinn þar sem hún sagði frá glímu eiginmanns hennar við banvænt mein, makamissinum og eigin lífi fyrsta árið frá fráfalli hans.

 

Hrafninn gerist á Grænlandi um miðja 15. öld og segir frá ungri inúítakonu, Naaju, sem er angakoq eða andakallari í þorpi við Diskóflóa og Íslendingnum Mikjáli frá Eystribyggð. Leiðir þeirra liggja saman eftir að Naaja er rekin í útlegð og bjargar lífi Mikjáls þegar ísbjörn ræðst á hann og félaga hans í veiðiferð. Öðrum þræði fjallar Hrafninn um ráðgátuna um örlög norrænu byggðanna sem stofnað var til af landnemum frá Íslandi skömmu fyrir aldamótin 1000 en þær hurfu sporlaust í þoku tímans um fjórum öldum eftir leiðangur Eiríks rauða til Grænlands.

 

Bergsteinn Björgúlfsson er margverðlaunaður kvikmyndatökustjóri og hefur stýrt kvikmyndatökum á fjölda mynda og sjónvarpsþáttaraða. Þar má meðal annars nefna Hross í oss, Djúpið, Svartur á leik, Mýrina, Reykjavík Rotterdam, XL, Fyrir framan annað fólk, Börn, Foreldrar, Bjarnfreðarson, Vaktarseríurnar og Ófærð.

 

,Ég hef ekki losnað við þessa sögu úr höfðinu síðan ég las hana 2010, mér fannst hún strax svo tilvalin á tjaldið,“ segir Bergsteinn. ,,Svo þegar ég sýndi Ólafi Darra hana og hann hvatti mig til að gera þetta bara sjálfur þá ákvað ég að slá til og hann mun framleiða með mér.“ 
Ólaf Darra þarf vart að kynna enda einn af vinsælustu leikurum landsins. Færri vita að hann hefur jöfnum höndum komið að framleiðslu margra verkefna. Má þar til dæmis nefna Börn, Foreldra, Sveitabrúðkaup og XL.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31