A A A
  • 1978 - Elín Soffía Pilkington
  • 1990 - Sólrún Arney Siggeirsdóttir
  • 1993 - Jónas Kristinn Jónasson
13.09.2017 - 06:59 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vegagerðin,Vestfirska forlagið

Hátíðarsprenging á morgun - 14. sept 2017

Munnasvæðið við Rauðstaði í Arnarfirði. Ljósm.: bb.is
Munnasvæðið við Rauðstaði í Arnarfirði. Ljósm.: bb.is
Það verður stór dagur í Arnarfirði á morgun, fimmtudaginn 16. september 2017, þegar Jón Gunnarsson samgönguráðherra hleypir af fyrstu gangasprengingunni í gangamunna Dýrafjarðarganga.

Hátíðarsprengingin verður kl. 16:00 og að henni lokinni verður dagskrá og kaffiveitingar í skemmu verktakans þar sem samgönguráðherra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og fulltrúi verktaka halda ávörp.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að þessi merki áfangi í samgöngusögu Vestfjarða er öllum opinn og bent á að gert er ráð fyrir að bílum verði lagt við þjóðveginn fyrir neðan munnasvæðið.


« Maí »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31