29.04.2013 - 23:19 | JÓH
		
	Guðni Páll heldur af stað á morgun
	
		
		Dýrfirðingurinn Guðni Páll Viktorsson, sem ætlar að róa á kayak hringinn í kringum landið til styrktar Samhjálp, leggur af stað í ferðalagið á morgun, 30. apríl. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir brottför þann 1. maí en ákveðið var að flýta ferðinni vegna óhagstæðrar veðurspár. Guðni Páll rær frá Höfn í Hornafirði kl. 10 á morgun og áætlar að vera kominn til Víkur í Mýrdal föstudaginn 3. maí. Hægt er að heita á Guðna Pál á heimasíðu verkefnisins hér, og fylgjast með ferðalagi hans, bæði á Facebook og á bloggsíðunni Around Iceland 2013. 
		
	
	
	
	
	


		
		
















