A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
13.01.2017 - 07:54 | Þjóðleikhúsið,Vestfirska forlagið,Komedia,Björn Ingi Bjarnason

Gísli á Uppsölum í Þjóðleikhúsinu - uppselt á fjórar sýningar

Elfar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.
Elfar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.

Í dag - hinn dásmlega föstudaginn 13. janúar 2017,  hefjast sýningar á Gísla á Uppsölum í Þjóðleikhúsinu.

Leikurinn hefur farið sigurför um landið síðan í haust og hlotið einlæglegar viðtökur. Óhætt er að segja að mikil spenna sé í landinu enda er þetta í fyrsta sinn sem Kómedíuleikhúsið sýnir í leikhúsi þjóðarinnar. Það er mikil eftirvænting meðal áhorfenda því nú þegar er uppselt á fyrstu fjórar sýningarnar á Gísla á Uppsölum í Þjóðleikhúsinu. Upphaflega stóð til að sýningar yrðu aðeins 3 en nú eru þær orðnar 6 og jafnvel verður enn bætt við sýningum. 

 

Miðasala fer fram á www.tix.is og í miðasölusíma Þjóðleikhússins 551 1200

 

Sýningar á Gísla á Uppsölum í Þjóðleikhúsinu:

1. sýning föstudaginn 13. janúar kl.19.30 UPPSELT

2. sýning sunnudaginn 15. janúar kl.14.00 UPPSELT

3. sýning miðvikudaginn 18. janúar kl.19.30 UPPSELT

4. sýning föstudaginn 20. janúar kl.19.30 UPPSELT

5. sýning sunnudaginn 22. janúar kl.14.00

6. sýning miðvikudaginn 25. janúar kl.19.30


« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31