A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
24.11.2016 - 08:34 | Vestfirska forlagið,Komedia

Gísli á Uppsölum á Norðurlandi

Gísli hefur verið á ferð og flugi um landið og enn er lagt í hann
Gísli hefur verið á ferð og flugi um landið og enn er lagt í hann

Gísli hefur verið á ferð og flugi um landið og enn er lagt í hann.

Leikferð Kómedíuleikhússins með hið vinsæla leikrit Gísli á Uppsölum heldur áfram og áfram og já bara alveg út árið. Gísli hefur verður sýndur fyrir norðan á Akureyri, Blönduósi og Hvammstanga. Tvær sýningar voru á Akureyri 14. og 15. nóvember önnur þeirra var uppseld og hin svo gott sem líka því þá er ekkert annað í stöðunni en að koma bara aftur.

Hin norðlenska leikferð komandi viku hefst á Siglufirði. Sýnt verður fimmtudaginn 24. nóvember í Alþýðuhúsinu. Daginn eftir verður aukasýning á Akureyri eins og síðar verður sýnt í hinni einstöku Hlöðu Litla-Garði. Leikferðinni lýkur síðan á Sauðárkrók á sunnudag þar sem sýnt verður í Mælifelli.

Allar sýningar hefjast kl.20.00 og er miðasala á sýningarnar í blússandi gangi í síma: 891 7025.

Einnig er hægt að panta miða með því að senda tölvupóst á netfangið komedia@komedia.is

Rétt er að geta þess að hópar fá að sjálfsögðu einstakt tilboð á sýninguna. Hvað er skemmtilegra en að brjóta skammdegið soldið upp og taka saumaklúbbinn eða vinnufélagana með sér í leikhús. Leitið tilboða við finnum eitthvað alveg sérstakt fyrir hópinn þinn.

Leikritið um Gísla á Uppsölum hefur fengið standandi góðar viðtökur og svo gott sem fullt hefur verið á allar 14 sýningar leiksins. Sagan hefur sannarlega snert hjörtu áhorfenda um land allt enda er óhætt að segja að Gísli sé þjóðinni enn minnisstæður og ekki síður kær.

Í lok nóvember verður Gísli á Uppsölum sýndur á Ísafirði og síðasta sýning fyrir jól verður á Selfossi. Svo gott sem uppselt er á sýninguna þar en enn eru örfá sæti laus á Ísafirði. Ekki heldur panta miða strax í dag.

Að síðustu má svo geta þess að Gísli á Uppsölum verður sýndur í Þjóðleikhúsinu í janúar. Miðasala á þær sýningar er hafin og gengur frábærlega vel á www.tix.is

 

__________________________________________

Gísli á Uppsölum

Gísli á Uppsölum er áhrifamikil sýning um einstakan mann


Gísli á Uppsölum er einstakt leikverk um einstakan mann. Einn stærsti viðburður íslenskrar sjónvarpssögu er Stiklu þáttur Ómars Ragnarssonar um einbúann Gísla Oktavíus Gíslason. Enn er Gísli landanum kær og hugleikinn. Hér er á ferðinni áhrifamikil sýning sem hefur hrifið áhorfendur líkt og saga söguhetjunnar.

 

Næstu sýningar:

Miðasala í blússandi gangi á sýningar um land allt. Hópar eru sérlega velkomnir, þannig fæst besta verðið.

Miðasölusími: 891 7025 

Miðaverð: 3.500.- 

 

24. nóvember kl.20.00. Siglufjörður. Alþýðuhúsið

25. nóvember kl.20.00. Akureyri, Hlaðan Litla-Garði

27. nóvember kl.20.00. Sauðárkrókur. Mælifell

1.   desember kl.20.00. Ísafjörður. Líkkistusmiðja Kristins Hæstakaupstað

9. desember kl.20.00 .  Selfoss, Fischersetur

 

Sýningar í Þjóðleikhúsinu í janúar:

Miðasala á www.tix.is 

13. janúar kl.19.30

15. janúar kl.14.00

 

 

Leikari: Elfar Logi Hannesson

Handrit: Elfar Logi Hannesson, Þröstur Leó Gunnarsson

Dramatúrg: Símon Birgisson

Tónlist: Svavar Knútur

Lýsing: Magnús Arnar Sigurðsson

Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson 



« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30