A A A
  • 1978 - Elín Soffía Pilkington
  • 1990 - Sólrún Arney Siggeirsdóttir
  • 1993 - Jónas Kristinn Jónasson
14.02.2015 - 18:00 | Björn Ingi Bjarnason

Frá Djúpi til Dýrafjarðar

Elfar Guðni Þórðarson, listmálari. Í bakgrunni eru m.a. Dýrafjarðarmyndir.
Elfar Guðni Þórðarson, listmálari. Í bakgrunni eru m.a. Dýrafjarðarmyndir.
« 1 af 5 »

Á Sólarkaffi Vestfirðinga og vina á Suðurlandi, sem verður á morgun sunnudaginn 15. feb. 2015 kl. 15:00 að Stað á Eyrarbakka, verður Elfar Guðni Þórðarson listmálari á Stokkseyri með málverkasýningu á Stað sem nefnist   -Frá Djúpi til Dýrafjarðar-  

Elfar Guðni hefur fimm sinnum á þessari öld dvalið á Sólbakka í Önundarfirði í samtals þrjá mánuði og málað mikið í vestfirskri náttúru (árin: 2004 - 2005 - 2009 - 2012 og 2013). Hann segist hvergi utan heimaslóðar sinnar hafa orðið fyrir jafn sterkum áhrifum til listsköpunar eins og vestra og má sjá þetta berlega á sýningunni.

 

Elfar Guðni var rétt í þessu að ljúka við að setja upp sýninguna að Stað með 38 málverkum og er sýningin hin glæsilegasta.

« Maí »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31