A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir er alþingismaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir er alþingismaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.
Ertu með þingmann í maganum?

Þannig spyr kjörstjórn Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi um leið og hún auglýsir eftir framboðum í flokksval Samfylkingarinnar í kjördæminu fyrir komandi Alþingiskosningar í haust.

Flokksval Samfylkingarinnar fer fram dagana 8. - 10. september 2016. Frambjóðendur í flokksvalinu geta þeir verið sem eru félagar í Samfylkingunni og hafa kjörgengi í kjördæminu. Framboðsfrestur er til miðnættis 19. ágúst. Framboðum ásamt meðmælalista skal skila til formanns kjörstjórnar, Geir Guðjónssonar. Nánari upplýsingar í síma 698-1036.


Kjördæmisráð Samfylkingarinnar samþykkti fyrir skömmu fyrirkomulag flokksvalsins. Kosið verður í fjögur efstu sæti listans í lokuðu flokksvali, eftir reglum flokksins. Kosning verði bindandi og jafnræði kynja verði gætt með paralista. Atkvæðagreiðslan fer fram með rafrænni kosningu.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30