16.10.2009 - 16:02 | JÓH
Fjórhjól á ferð um Vestfirði
Á milli 9 og 10 í fyrramálið ætla félagar í
Óbyggðaferðum að taka á móti Dýrfirðingum fyrir utan gistiheimilið Við
fjörðinn. Félagarnir lögðu af stað frá Reykjavík í dag og ætlunin er að
ferðast um Vestfirði næstu þrjá daga á fjórhjólum. Hópurinn ætlar að
gista á Þingeyri í nótt og vilja bjóða áhugamönnum um ferðalög og
fjórhjól að hitta sig og skoða hjólin fyrir utan gistiheimilið áður en
lengra er haldið. Hægt er að skoða myndir og fleira á heimasíðu Óbyggðaferða