A A A
16.10.2009 - 16:02 | JÓH

Fjórhjól á ferð um Vestfirði

Hópurinn á ferðalagi um Sprengisand. Mynd: obyggdaferdir.is
Hópurinn á ferðalagi um Sprengisand. Mynd: obyggdaferdir.is
Á milli 9 og 10 í fyrramálið ætla félagar í Óbyggðaferðum að taka á móti Dýrfirðingum fyrir utan gistiheimilið Við fjörðinn. Félagarnir lögðu af stað frá Reykjavík í dag og ætlunin er að ferðast um Vestfirði næstu þrjá daga á fjórhjólum. Hópurinn ætlar að gista á Þingeyri í nótt og vilja bjóða áhugamönnum um ferðalög og fjórhjól að hitta sig og skoða hjólin fyrir utan gistiheimilið áður en lengra er haldið. Hægt er að skoða myndir og fleira á heimasíðu Óbyggðaferða
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30