A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
« 1 af 4 »
Önfirðingar ætla að fagna sjómannadeginum eins og þeim er lagið, með gleði, söng og leikjum. Hátíðarhöldin hefjast með óformlegum hætti á föstudagskvöld á Vagninum á Flateyri, þar sem Stebbi Jóns og Dóri Palla ætla að sjá um dagskrá og félagar úr hljómsveitunum Cor og Amadeus hafa bókað komu sína. 

Á laugardag hefst formleg dagskrá með dorgkeppni á höfninni á Flateyri og svo rekur eitt af öðru. Þar má nefna fótboltakeppni, boðhlaup, reiptog, kappróður og svo framvegis. Kaffihlaðborð kvenfélagsins Brynju verður kl. 15. Um kvöldið verður boðið upp á fiskisúpu í boði Arctic Odda og á miðnætti verður stórdansleikur með Cor og Amadeus. 

Á sunnudag verður sigling kl. 13 og messa kl. 14.  

Það er björgunarsveitin Sæbjörg á Flateyri sem hefur veg og vanda af dagskránni. 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30