A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
13.02.2017 - 20:14 | Þjóðleikhúsið,Vestfirska forlagið,Komedia,Björn Ingi Bjarnason

Enn fleiri aukasýningar á Gísla í Þjóðleikhúsinu

Elfar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.
Elfar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.
« 1 af 2 »

Kómedíuleikhúsið hefur undanfarinn mánuð sýnt hið áhrifamikla leikrit Gísli á Uppsölum í Þjóðleikhúsinu.

Upphaflega stóð til að sýningarnar yrðu tvær eða þrjár en eru nú komnar í 12 og enn er bætt við aukasýningum.

Þrjár aukasýningar á Gísla í Þjóðleikhúsinu verða núna í vikunni.

Sýnt verður miðvikudaginn 15. febrúar kl.19.30,
laugardaginn 18. febrúar kl.17.00
og loks sunnudaginn 19. febrúar kl.17.00.

Eru þetta allra síðustu sýningar á Gísla á Uppsölum og því borgar sig ekkert að fresta því að skella sér í leikhúsið.

Miðasala á aukasýningarnar þrjár fer fram á www.tix.is Einnig er hægt að bóka miða í miðasölusíma Þjóðleikhússins 551 1200. 

Gísli á Uppsölum hefur fengið einlægar og einstakar viðtökur áhorfenda sem gagnrýnenda. Þar á meðal 4 stjörnur hjá rýnara Morgunblaðsins. 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30