A A A
  • 1978 - Elín Soffía Pilkington
  • 1990 - Sólrún Arney Siggeirsdóttir
  • 1993 - Jónas Kristinn Jónasson
05.04.2017 - 21:50 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson,Búnaðarfélag Auðkúluhrepps,Björn Ingi Bjarnason

„Ekki verði seldur fimmeyringur“

Úr Morgun-blaðinu miðvikudaginn 5. apríl og ályktanir Búnaðarfélagsins vestra falla vel að spaugi dagsins.
Úr Morgun-blaðinu miðvikudaginn 5. apríl og ályktanir Búnaðarfélagsins vestra falla vel að spaugi dagsins.

• Búnaðarfélag Auðkúluhrepps ályktar um bankana, útgerðina og Hrafnseyri

Aðalfundur Búnaðarfélags Auðkúluhrepps í Arnarfirði var haldinn nýlega.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa voru samþykktar þrjár ályktanir þar sem komið var inn á sölu ríkisbankanna, útgerðina og málefni Hrafnseyrar.

„Aðalfundur Búnaðarfélags Auðkúluhrepps krefst þess af Alþingi og ríkisstjórn að ekki verði seldur fimmeyringur í Landsbankanum. Fundurinn telur að alls ekki megi hleypa erlendum fjárglæframönnum og vogunarsjóðum með krumlurnar í sjóði hans. Það er álit fundarins að Landsbankinn eigi að vera 100% í eigu allra Íslendinga. Viðskiptabanki fyrir venjulegt fólk. Alveg eins og sparisjóðirnir voru. Það þarf að lýsa þessu yfir í eitt skipti fyrir öll fyrir hönd eigendanna. Bankinn á ekki að standa í neinu peningaþvætti,“ segir í ályktun um Landsbankann.

Þá ályktaði félagið að það væri „algjörlega óásættanlegt að útgerðarmenn, að þeim ólöstuðum, réðu því hvar byggð skyldi haldast í sjávarplássum á Íslandi.“

Loks var samþykkt að biðja Alþingi og ríkisstjórn vinsamlegast að leiða hugann að eftirfarandi: „Er það ásættanlegt fyrir þjóðina, að Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar, sé algjörlega mannlaus eyðistaður a.m.k. átta mánuði ársins?“

 

Morgunblaðið 5. apríl 2017.


« Maí »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31