A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
10.10.2015 - 11:24 | Vestfirska forlagið

Einn góður úr nýju bókinni: - Nóg með grunnskólann

Ólafur Þórdísarson Jónsson, Óli kommi. Ljósm. Rúv)
Ólafur Þórdísarson Jónsson, Óli kommi. Ljósm. Rúv)
« 1 af 2 »

Umræðan um sjálfstæðan háskóla á Vestfjörðum er ekki ný af nálinni og mun standa enn um hríð. Hún hófst eiginlega strax og menntaskóli varð að veruleika á Ísafirði. Um svipað leyti fundu fræðslumálayfirvöld í landinu upp svonefnt samræmt próf grunnskóla. Á því prófi sköruðu Vestfirðingar ekki fram úr öðrum landsfjórðungum, nema síður væri. Ólafur Þ. Jónsson, Óli kommi, skipasmiður og lengi vitavörður á Hornbjargsvita, var staddur í húsi í Hnífsdal á ofanverðri síðustu öld, þegar háskólaumræðuna bar á góma og var mönnum heitt í hamsi að fá ekki sinn háskóla. Ólafur lagði lítt til mála, en sagði síðan upp úr eins manns hljóði:

   „Mér fannst nú alltaf, að Vestfirðingar ættu nóg með grunnskólann.“

                            
  (Finnb. Hermannsson, 99 vestf. þjóðs.)

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30