A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
21.05.2015 - 17:25 | BIB,bb.is

Efnilegt tónlistarfólk á Þingeyri

Tuuli með nemendum sínum í lok tónleika. Ljósm: Sigríður Ragnarsdóttir.
Tuuli með nemendum sínum í lok tónleika. Ljósm: Sigríður Ragnarsdóttir.
Tónlistarnemar í útibúi Tónlistarskóla Ísafjarðar á Þingeyri héldu velheppnaða tónleika í félagsheimilinu á staðnum í fyrrakvöld.

„Þessi fámenni en frábæri hópur fluttu þarna rúmlega klukkustundarlanga dagskrá og stóðu sig öll framúrskarandi vel,“ segir Sigríður Ragnarsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar.

Dagskráin var afar fjölbreytt, lög frá ýmsum tímum og löndum, leikið var á blokkflautu, gítar og píanó, en líka sungu margir nemendanna. Í lokin lék svo hljómsveit nemenda.

Það er tónlistarkennarinn Tuuli Rähni, sem útsetti og æfði öll lögin, auk þess sem hún skipulagði og undirbjó tónleikana.
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31