A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
13.02.2015 - 08:23 | Morgunblaðið,BIB

Dýrfirðingurinn - Gestur Jónsson - Minning

Gestur Jónsson.
Gestur Jónsson.
« 1 af 2 »
Gestur Jónsson fæddist 7. október 1924 á Saurum í Keldudal, Dýrafirði. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi 27. janúar 2015.

Foreldrar hans voru (Magnús) Jón Samúelsson, f. 13.9. 1869, d. 26.6. 1931, og Halldóra Gestsdóttir, f. 19.3. 1884, d. 6.7. 1972. Gestur var yngstur þriggja systkina er upp komust, Ingibjörg Andrea, f. 1918, d. 1993, og Guðmunda Kristjana, f. 1922. Þá átti Gestur tvö uppeldissystkini, Guðmund J. Kristjánsson, f. 1911, d. 2000, og Svanhildi Árnýju Sigurjónsdóttur, f. 1927.

Þann 11.3. 1950 kvæntist Gestur Ruth Heyden, f. 27.7. 1925, d. 16.4. 1988, íþróttakennara frá Neustrelitz Þýskalandi. Foreldrar hennar voru Friedrich Heyden, f. í Tannenkrug 1888, d. 1945, og Antonie Heyden (Fuest), þau voru búsett í Neustrelitz. Gestur og Ruth eignuðust fjögur börn: 1. Kristjönu, f. 29.1. 1950, skrifstofum. Hraunteigi, maki Birgir Örn Birgisson, f. 1959, múraram. Börn þeirra: Eva Björk, Birgir Sigurjón og Ólöf Ósk. Fyrir átti Kristjana Hafrúnu Rut Backman. 2. Halldóra Ásdís, f. 2.11. 1951, matráður Litlu-Giljá, maki Steingrímur Ingvarsson bóndi, f. 1951. Börn þeirra: Hallgrímur Ingvar, Gestur Fannar og Lillý Rebekka, fyrir átti Halldóra Smára Rafn Haraldsson. 3. Soffía Rósa, f. 13.11. 1959, sölumaður í Reykjavík, maki Birgir Þór Borgþórsson bankamaður. Börn þeirra eru Erling Þór og Karen Lóa. 4. Gestur Jón, f. 1.3. 1963, iðnrekstrarfræðingur í Reykjavík, maki Kristín Grétarsdóttir skrifstofum. Börn þeirra Unnur Thelma og Tómas Tumi. Langafabörnin eru tíu.

Gestur ólst upp í Keldudal til unglingsára en réðst ungur sem kaupamaður að Hæl í Hreppum, þaðan lá leiðin í Bændaskólann á Hólum þar sem hann útskrifaðist sem búfræðingur 1946. Þá lá leiðin aftur austur að Hæl þar sem hann stundaði öll almenn landbúnaðarstörf hjá þeim bræðrum Steinþóri og Einari. Að Hæl rést á eftirstríðsárunum ung kaupakona, Ruth frá Þýskalandi, sem síðar varð kona hans. Gestur og Ruth hófu búskap sem ráðsmenn við tilraunabúið á Sámstöðum í Fljótshlíð 1950 þar sem elstu dæturnar eru fæddar. Þaðan lá leiðin að Öxnalæk í Ölfusi og síðan 1955 að Skaftholti í Gnúpverjahreppi sem þau síðar eignuðust. Þar stundaði Gestur allan almennan búskap með konu sinni og seinni börnin fæddust. Heilsu Ruthar hrakaði mjög síðari árin og bjó Gestur einn með börnum sínum í Skaftholti þar til hann seldi jörðina 1980 og byggði nýbýlið Hraunhóla úr landi Skaftholts. Gestur hóf störf við Búrfellsvirkjun um 1976, fyrst hjá verktökum en síðar hjá Landsvirkjun þar sem hann lauk sinni starfsævi 1994. Síðustu árin sem Gestur hélt heimili bjó hann í Fossheiði 34 á Selfossi þar til hann flutti á dvalarheimilið Sæborg. Gestur hafði prýðissöngrödd og unni tónlist alla tíð og söng í fjölda kóra meðan röddin hélt. Eftir að hann brá búi snéri hann sér í meira mæli að hestamennskunni sem hann sinnti af natni meðan kraftar og heilsa leyfðu.

Útför Gests fer fram frá Skálholtskirkju í dag, 13. febrúar 2015, og hefst athöfnin kl. 14. Jarðað verður á Stóra-Núpi.

 

Morgunblaðið föstudagurinn 13. febrúar 2015.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31