A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
Fallegt er á Tjaldanesi. Þar tekur ekki sól af allan ársins hring. Hokinsdalur til vinstri, sem einnig hefur sinn sjarma. Ljósm. H. S.
Fallegt er á Tjaldanesi. Þar tekur ekki sól af allan ársins hring. Hokinsdalur til vinstri, sem einnig hefur sinn sjarma. Ljósm. H. S.

Alltaf er eitthvað að frétta úr Auðkúluhreppi þegar sumir aðrir hreppar eru kannski fjarri góðu gamni. Og nú er hreppsnefnd Auðkúluhrepps komin úr sumarfríi.

Hreppsnefndarmenn fóru þreyttir og með urg í fríið, eins og sagt var frá í fréttum um daginn, en komu samt þreyttari en með þokkalega geðheilsu til baka. Sumir „duttu í ðað“ svona eins og gengur. Svo sungu þeir glatt þegar þeir komu heim: „Hreppstjórinn er húfulaus og oddvitinn er ekki laus við rúmbu og rokk.“ Héldu svo fund á Tjaldanesi í gær kl. 16:00. Þar voru samþykktar þessar fínu ályktanir. Hér skulu nokkrar nefndar, en þær eiga sko skilið að komast í fjölmiðla:

Samþykkt var með öllum atkvæðum að Auðkúluhreppur verði áfram á undan sinni framtíð eins og verið hefur.

Þá var samþykkt að greiða fyrir hlaupatófur 7,000,- kr. á skottið. Minkaskott 10,000,- kr. (Birt án ábyrgðar!) Síminn er þrjár stuttar (Það er sko gamli sveitasíminn!) Ef hann svarar ekki verða menn bara að reyna í gegnum Miðstöð, á útlensku Operator. 


Hver gleypir so manninn?

„Mannskepnan er nú loks að fatta að hún er á góðri leið með að fylla heimshöfin af plasti (þetta er svakalegt!) Fiskurinn gleypir svo plastið og maðurinn gleypir fiskinn. En hver ætli gleypi loks manninn? Nefndin óttast að það verði bara græðgin.“


Blátt bann við allri plastnotkun!

„Nefndin samþykkir að leggja blátt bann við allri plastnotkun í hreppnum frá og með 15. ágúst. Felur hún hreppstjóra að fara nú milli bæja og leggja hald á allt plast sem hann kemst höndum undir. Setja það svo undir lás og slá í þinghúsi hreppsins undir Auðkúlubökkum, en þar fór fram Kúlubardaginn mikli 1956 sem kunnugt er. Það var mesta fólkorusta á Vestfjörðum allt frá Flóabardaga.“

Plastverksmiðjunni lokað!

„Þá verði settur slagbrandur fyrir plastverksmiðju hreppsins, Plastic Union. com í Hokinsdal og útibúið í Gíslaskeri frá og með næstu áramótum. Var þess farið á leit við gamla sýslumanninn að hann setji innsigli á útidyrnar.“

Fleira gert sem verður ekki sagt frá opinberlega að svo stöddu. 

Fundi slitið.

Grelöð Bjartmarsdóttir, jarls á Írlandi.

               fundarritari

 


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30